
Sign up to save your podcasts
Or


Flekaskil leggja í þeysireið yfir stöðuna, lykileinvígi og afleiðingarnar sem bandarísku þingkosningarnar sem fram fara 3. nóvember geta haft. Við tölum um stórt og smátt, átökin um sætin þar sem spennan er mest, bestu og verstu frambjóðendurna, peningana í bandarískri pólitík, áhrif Trumps og frambjóðandann sem fékk barn í hendur - og missti það. Gestur þáttarins er Sigríður Rut Júlíusdóttir dómari sem hefur fylgst grann með bandarískum stjórnmálum árum saman.
Í samtali okkar fáum við beina innsýn í stöðuna á Úkraínu en Þórdís Kolbrún kom nánast beint þaðan til Varsjár. Við förum yfir hina spennuþrungnu stöðu í samskiptum Úkraínu og Bandaríkjanna - sem birtust meðal annars í ræðu Zelenskís í Varsjá. Skilaboðum yfirhershöfðingja NATO um hvering hvers kyns árásum Rússa yrði hrundið af hálfur varnarbandalagsins. En einnig mögnuðum viðvörunarorðum Katarzyna Pisarska stjórnarformanni Öryggisráðstefnunnar í Varsjá um hvert stefnir í stríðinu, stöðunni þar og hvað þurfi að breytast til að vel fari.
Ræða Katarzyna Pisarska: https://www.youtube.com/live/WVaBU-L02-0 - og hefst á mínutu 2.44.
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur hefur mikla þekkingu á stöðu og þróun alþjóða- og öryggismála. Við komum víða við í tæpitungulausu spjalli: Grænlandssamningurinn, íslensk varnarmál, staðan í Úkraínu, hernaður Rússa í Evrópu sem við köllum orðinu sem enginn skilur: fjölþáttaógnir, Íran og ný bandalög í kjölfar þess og ögrandi spurningar á borð við þá hvort Ísland þurfi leyniþjónustu.
Hver er staðan á Gaza og Vesturbakkanum? Hver er bakgrunnur hörmunganna sem almenningur á svæðinu býr við? Hvaða áhrif höfðu hryðjuverkin 7. október 2023? Skiptir umræðan um þjóðarmorð, alþjóðalög og stríðsglæpi máli? Eru líkur á að tveggja ríkja lausn verði að veruleika og getum við bundið vonir við að varnalegur friður komist á.
Íran-stríðið. Bakgrunnur átakanna og árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Áhrif stríðsins á stöðu Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum. Magnús Þorkell Bernharðsson sérfræðingur um sögu og stjórnmál Mið-Austurlanda er gestur Dags B. Eggertssonar í Flekaskilum.
Flekaskil fjalla um mála málanna á Norðurslóðum, boðaðan samning Bandaríkjannna, Danmerkur og Grænlands sem boðað hefur verið að skrfað verði undir á morgun, þriðjudag 22. september.
Vilborg Ása Guðjónsdóttir stjórnmálafræðingu og sérfræðingur í málefnum Grænlands ræðir stöðuna.
Við fjöllum um tímamótaræður Ursulu von der Leyen og Mark Carney um nánara samband ESB og Kanada, stöðu EES-samningsins og stefnumarkandi yfirlýsingu Norðmanna um þróun samningsins, stöðu Íslands í því samhengi og væntanlegan fund Trump Bandaríkjaforseta og Xi Jinping leiðtoga Kína í vikunni.
Símtal Bjarna Ben og Trump. Viðaukinn við varnarsamninginn sem aldrei var kynntur Alþingi. Það var komið víða við í samtali Dags B. og Bjarna Más Magnússonar lögmanni og fyrrverandi prófessors. Erum við að afsala okkur fullveldi án þess að ræða það? Og erum við að horfa á uppnám í aldagömlum reglum um hafrétt og siglingarfrelsi. Hvaða áhrif hefur það á heimili og fyrirtæki á Íslandi.
Íslendingar halda að ástand heimsins komi þeim ekki við
Ingólfur Bjarni fréttamaður er gestur Flekaskila þar sem komið er víða við. Um þjóðaratkvæðagreiðsluna og Evrópu, viðræður um frið í Úkraínu, fjölþáttaógnir, varnarsamninginn við Bandaríkin, leyndarhyggju og hvort hægt sé að treysta gömlum samningum í nýjum heimi, Trump og Pútin.
Flekaskil – halda áfram. Heimurinn á korteri og Grænland Flekaskil halda áfram þótt Þórdís Kolbrún stigi til hliðar sem stjórnandi. Pipaluk formaður utanríkis- og öryggisnefnd Grænlenska þingsins opnar hjarta sitt í einstöku viðtali um stöðuna í Grænlandi og það sem hefur gengið á. Þjóðaratkvæðagreiðslan, deilur Bandaríkjanna og Kanada, tilhugalíf Kanada og Evrópu, CIA forstjóri í Moskvu, skeytasendingar í Íran, eignarhald og olíugjafir til Trump í Venesúela og fjölmargt fleira er umfjöllunarefni í „Heimurinn á korteri“ – yfirliti yfir það fjölmarga sem gengið hefur á undanfarna daga á meðan Ísland var undirlagt af Evrópu-umræðunni.
Við ræðum viðskiptastríð sem braust út milli Bandaríkjanna og Kanada, kröfur Trump sem ganga á fullveldi og spurningalista Bandaríkjanna til NATO-ríkja. Við berum orðræðuna saman við Grænlandsmálið og ræðum Evrópumálin í þessu ljósi. Þá tilkynnir Þórdís Kolbrún um þáttaskil í þáttöku sinni í Flekaskilum.
From the publisher's feed
Varnarsamningurinn milli Íslands og Bandaríkjanna er 75 ára um þessar mundir. Ekki gera allir sér grein fyrir að hann er nátengdur NATO og veru okkar þar. Sum ákvæði viðauka hans voru leyniskjöl…
Flekaskil er hlaðvarp sem fjallar um Ísland og alþjóðamál. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri eru af sinn hvorum væng stjórnmálanna. Þau ræða flekaskilin sem eru að verða í alþjóðamálum, breytta heimsmynd, árásir á alþjóðalög, bresti í bandalögum og nýjar átakalínur en síðast ekki síst hvernig þessar breytingar hafa áhrif á stöðu Íslands, — í öryggis- og varnarmálum, í samskiptum við helstu bandalagsríki okkar, í tengslum við Bandaríkin, NATO, Trömp og Evrópu.