
Sign up to save your podcasts
Or


Late 80´s var Seattle bara útnári þar sem að ekkert var að gerast og þangað sem enginn fór sem ekki átti erindi en í bílskúrum og kjöllurum víðsvegar um borgina voru hljómsveitir að spila sem áttu svo eftir að leggja heiminn að fótum sér.
Soundgarden eru alltaf nefndir sem einn af fjórum risum grunge tímabilsins og sú hljómsveit sem best náði að brúa bilið á milli alternative tónlistar og heavy metal.
Hvað svo sem sumum okkar, og þar á meðal mér, finnst um Wham! þá getur enginn sagt annað en að George Michael hafi verið frábær söngvari og líka lagahöfundur og oft vanmetinn sem slíkur.
Hann gaf ekki út margar sólóplötur á ferlinum en þar er að finna fjöldan allan af ódauðlegum popp lögum. Hann átti við allskonar vandamál að stríða seinni hluta æfinnar og lést langt um aldur fram 2016 aðeins 53 ára gamall.
Margir segja að Guns ´n´ Roses séu síðasta risa rokk bandið sem komið hefur fram á sjónarsviðið. Þeir spiluðu sína blöndu af pönki, blues og classic rock og komu með, eins og einhver sagði "danger, attitude and legitimacy" þegar hair metalið hafði gengið allt of langt í hárspreyi og eyliner.
Þó þeir hafi bara gefið út 4 stórar plötur með frumsömdu efni á öllum sínum ferli þá er hljómsveitin enn að fylla stórar íþróttahallir út um allan heim og það er hægt að velta fyrir sér hversu mikið meir þeir hefðu getað gert ef risastór egó og allt of mikið af vímuefnum hefðu ekki sprengt hljómsveitina í loft upp eftir Use your illusion
Einhver blaðamaðurinn sagði um Lou Reed: Það eru til allskonar áhrifavaldar. Sumir hafa áhrif á ákveðna bylgju tónlistar meðan aðrir hafa áhrif á ákveðna kynslóð. Áhrif Lou Reed náðu langt út fyrir eina tónlistarbylgju eða eina kynslóð heldur náði hann að setja sitt mark á allt frá pönkinu á fyrri hluta 8. áratugarins og öllu sem á eftir því fylgdi yfir í alternative rock 10. áratugarins
Metallica er án nokkurs vafa ein áhrifamesta og goðsagnakenndasta metal hljómsveit sögunnar. Ferill þeirra spannar áratugi og milljónir aðdáenda um allan heim hafa hlustað á lögin þeirra, mætt á tónleika og keypt plötur allar götur síðan Kill ´em all kom út.
Saga Metallica er saga þrautsegju og ástríðu fyrir tónlistinni og þeir hafa alltaf haldið ótrauðir áfram sama hvað á hefur dunið
Billy Idol er eflaust ein af mest áberandi persónum 9. áratugarins í tónlistarbransanum.
Það þekkja allir ljósa aflitaða hárið, rámu röddina og glottið sem hann var alltaf með á andlitinu. En hann vann fyrir þessu öllu.
Hann flytur frá Bretlandi til Bandaríkjanna með ekkert í höndunum annað en drauminn um að öðlast frægð og frama sem tónlistarmaður og það tókst honum svo sannarlega. Hann var réttur maður á réttum stað á réttum tíma og ásamt útlitinu og grípandi pop/rock lögunum þá var engin furða að MTV tækju honum opnum örmum
Aerosmith eru risastór áhrifavaldur á heila kynslóð rokktónlistarmanna í Bandaríkjunum hvort sem það eru Guns´n´Roses, Van Halen eða Skid Row.
Í heil 56 ár hefur hljómsveitin starfað og nánast allan þann tíma með sömu meðlimunum sem byrjuðu að spila saman í íbúðinni sem þeir deildu í Boston sem er alveg ótrúlegt miðað við lífernið. Að þeir séu allir ofan moldu í dag, komnir á áttræðisaldur er hreint magnað.
Á sínum 48 ára ferli hafa Duran Duran farið frá því að vera ein vinsælasta hljómsveit heims með með hysterískar unglingsstelpur við hvert fótmál yfir í að vera droppað af þrem mismunandi útgáfufyrirtækjum og vera skítblankir og skulda svimandi háar upphæðir.
En sama hvað á dundi þá komu þeir alltaf til baka og er hljómsveitin í dag enn skipuð fjórum af fimm uprunalegu meðlimunum og er enn í fullu fjöri.
Fyrsta plat Van Halen kom út í febrúar 1978 og rokktónlistin varð aldrei söm aftur. Hún kom eins og skrattinn úr sauðarleggnum inn í tónlistarumhverfi þar sem var disco annars vegar og pönk og nýbylgja hins vegar og ruddi veginn fyrir það sem á eftir kom og dró gítarhetjuna og flamboyant söngvarann aftur fram í sviðsljósið auk þess að sýna að gleði og húmor áttu alveg heima í rokktónlist
KISS hafa verið með okkur í 52 ár og eru ekkert að fara.
Þó að tónlistarpressan hafi hatað hljómsveitina allan hennar feril þá létu þeir það ekkert á sig fá og það eru ófáir tónlistarmennirnir sem hafa verið KISS aðdáendur á unglingsárunum og margir eru það enn.
En KISS eru ekki bara hljómsveit heldur heimsþekkt vörumerki sem metið er á um 300 milljónir dollara
From the publisher's feed
Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu…