Glans

FLUG: draumur & saga


Listen Later

Í dag hefur göngu sína spánný stuttþáttaröð Glans þar sem svifið verður með hlustendur um heim flugsins. Í seríunni verða innviðir flugheims skoðaðir; flugvellir, flugumferðarstjórn, flugmenn, flugfreyjur og flugvirkjar, sem og grasrótarstarfsemi og fyrirbæri eins og flugkvíði. Í þætti dagsins skoðum við þrá mannsins til að fljúga um skýjað fjalllendi háloftanna og merka atburði úr sögu flugsins hér heima og víðar.
,,Frá örófi alda hefur ein ofdirfskufyllsta ósk mannsins verið sú að draumurinn um flug hans verði að veruleika,?? eins og Sigurður Magnússon blaðafulltrúi sagði í erindi í tilefni af sérstakri hátíðardagskrá Ríkisútvarpsins árið 1959. Haldið var upp á að þá voru fjörutíu ár liðin síðan íslensk flugvél hóf sig fyrst á loft af íslenskum flugvelli. Við hlýðum á viðtalsbrot úr þeim þætti þar sem rætt var við stjórnarmann í fyrsta Flugfélags Íslands, sem stóð að fluginu, sjónarvotta, flugmenn og fyrstu íslensku flugfarþegana.
Einnig verður rætt við Arnþór Gunnarsson sagnfræðing sem skrifaði Sögu flugvalla og flugleiðsögu á Íslandi, og Kristínu Höllu Baldvinsdóttur sýningarstjóra vefsýningar Ljósmyndasafns Íslands, „Fyrsta flug á Íslandi“.
Umsjónarmaður: Anna Gyða Sigurgísladóttir
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

GlansBy RÚV