Í þætti dagsins kynnum við okkur starf flugmanna og flugstjóra. Fáum að skyggnast á bak við tjöldin, spyrjum meðal annars; hvernig er tilfinningin þegar flugvélin tekur á loft? Hvernig var fyrsta flugið? Hvert er það eftirminnilegasta? Hvenær kviknaði flugáhuginn? Hvernig er lífið nú á faraldurstímum þegar lítið er flogið? Einnig heyrum við gamalt viðtal við Björn Pálsson, frumkvöðul í sjúkraflugi á Íslandi.
Viðmælendur eru: Hallgrímur Jónsson, Inga Lára Gylfadóttir og Þorvaldur Friðrik Hallsson,