Glans

FLUG: flugvirkjar


Listen Later

Í þessari stuttþáttaröð Glans eru innviðir flugheims skoðaðir. Fjallað er um flugvelli, flugumferðarstjórn, flugmenn, flugfreyjur og flugvirkja, sem og grasrótarstarfsemi og fyrirbæri eins og flugkvíða. Í dag kynnum við okkur flugstétt sem er ekki oft í sviðsljósinu - við skoðum starf flugvirkja.
Flugvirkjar eru þeir sem meta ástand flugvéla, gera við þær, framkvæma reglubundnar skoðanir og passa að þessar gríðarstóru, níðþungu vélar fljúgi áfallalaust með farþega um loftin blá. Enn er nóg að gera hjá einhverjum flugvirkjum. Um allan heim eru flugvélar nú í kyrrstöðu á jörðu niðri og bíða eftir því að fá að fljúga á ný. Kyrrstaða flugvéla er meira vesen en maður hefði haldið því „flugvél í kyrrstöðu þarf meira viðhald en þegar hún er í notkun. Það versta sem getur komið fyrir flugvélar er að láta þær standa á jörðinni,“ eins og Hörður Már Harðarson. Við erum í flugskýli og viðhaldsstöð Icelandair á Keflavíkurflugvelli í þætti dagsins.
Umsjónarmaður: Anna Gyða Sigurgísladóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

GlansBy RÚV