Í lokaþætti þáttaraðar um flug heimsækjum við Albert Sigurjónsson, húsasmið sem hefur varið nær öllum frístundum sínum síðustu tuttugu ár, og meira en það, í að smíða flugvélar. Afraksturinn er tvær handsmíðaðar fullbúnar flugvélar sem Albert flýgur sjálfur nú yfir Suðurlandi. Við spyrjum; hvernig smíðar maður flugvél?
Umsjónarmaður: Anna Gyða Sigurgísladóttir