Fólk er fífl

Fólk er fífl

Download on the App Store

Fólk er fífl episodes

  • Unglingar eru fífl
    Fimm miðaldra karlmenn settust niður og fóru að ræða um unglinga. Markmiðið var að tala illa um þann óskapnað en aðallega voru rifjaðir upp gamlir góðir tímar. Mikið var fjallað um hráka og aðra líkamsvessa. Varúlfar koma við sögu, covid-börnin, strætisvagnar, Benz-merki og hálsbrjóstsykur.
    35 min
  • Fólk og fordómar
    Fólk er fordómafullt og hatarar kannski sér í lagi. Guðlaugur og Hjörtur fitla hér við fordómana í sér. Nú er rætt um veganaktívista, Vestmannaeyinga, fúla strætóbílstjóra, fólk á pallbílum, kristið fólk, unglinga, edrúmennsku og annað.
    1 hr 2 min
  • Berserksgangur á Barðaströnd
    Fólk er fífl breytist í „True Crime“ þátt þegar Guðlaugur og Hjörtur lesa gamla frétt um „Byssumanninn á Barðaströnd“. Fréttin er krufin og leitað svara um fíflaskap úr fortíðinni. Hversu mörg eru systkynin? Hver er gamla konan? Hvernig er sambandi Vilborgar og Þórs háttað? Og var skotið úr byssu eða ekki? Hlustið á þennan einstaka…
    40 min
  • Fólk á ferðalögum
    Nú er rætt um fólk á ferðalögum. Gulli segir farir sínar ekki sléttar. Rætt er um fulla Svía, slæma hegðun í flugvélum, Færeyinga ber á góma eins og áður, minnst er á sólbrennda Breta og valið er fífl þáttarins.
    43 min
  • Fólk er skríll
    Hugleikur Dagsson kom í heimsókn í skúrinn hans Gulla og ræddi við Þránd, Gulla og Hjört um húlíganisma eða skrílslæti. Að vanda er farið á milli himins og jarðar og meðal annars rætt um nasista, fótboltabullur, grindhvaladráp, fánabrennur og Patrick Stewart. Karen kemur ekkert við sögu.
    37 min
  • Hjól vs. bílar
    Internetið fór á hliðina þegar löggan birti mynd. Guðlaugur og Hjörtur ræða um hjólandi menn í latexgöllum, reiða ökumenn, umferðarlögin, ríkjandi stöðu, Seltjarnarnesið og ísbíltúr.
    41 min
  • Fólk og eldgos
    Guðlaugur og Hjörtur ræða áhættuhegðun í námunda við eldgos, sjálfumyndatökur og hjarðhegðun Íslendinga
    31 min
  • Fólk á internetinu
    Hjörtur og Guðlaugur fjalla um internetið í öllu sínu veldi. Virkir í athugasemdum fá sína útreið, fjallað er um typpamyndir, spjallrúllettu og bræðipóst. Fjargviðrast er yfir hinum ýmsustu veföppum og almennu aðgengi iðjóta að internetinu.
    37 min
  • Fólk er þjóðir
    Hér alhæfa þeir frændur um þjóðir, fá útrás fyrir hatur sitt (ótta sinn) á Hollendingum og Dönum og unglingum. Að venju er farið langt út fyrir efnið og fjallað t.d. um stuttbuxnatísku, hobbita og órökvissa fjöldamorðingja. Athugið: Hér er ekki rætt um almenningssamgöngur!
    28 min

About Fólk er fífl

From the publisher's feed

Þátturinn Fólk er fífl fjallar um einmitt það, hversu mikið fífl fólk er. Farið er yfir víðan völl um þetta efni, snert á atriðum, litum sem stórum, í fari náungans sem pirra okkur samferðarfólk hans…