Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Fólkið á Norðurlandi vestra - rætt er við einstaklinga í landshlutanum sem eru að sýsla við áhugaverða hluti á hinum ýmsu sviðum... more
FAQs about Fólkið á Norðurlandi vestra:How many episodes does Fólkið á Norðurlandi vestra have?The podcast currently has 42 episodes available.
September 07, 2022Linda Fanney ValgeirsdóttirAð þessu sinni var rætt við Lindu Fanney Valgeirsdóttur, framkvæmdastýru nýsköpunarfyrirtækisins Alor sem er að þróa umhverfisvænar álrafhlöður. Linda Fanney ólst upp á bænum Vatni á Höfðaströnd í Skagafirði og er faðir hennar, Valgeir einn af stofnendum Alor. Í þættinum segir Linda Fanney frá fyrirtækinu Alor og hvernig er að starfa við nýsköpun....more31minPlay
July 28, 2022Margrét Katrín GuttormsdóttirMargrét er verkefnastjóri textílab á Blönduósi. Í þættinum segir hún okkur frá textíllabinu, hvaða tæki eru í boði og hvernig er hægt að nýta smiðjuna....more24minPlay
July 06, 2022Sólveig Pétursdóttir og Þuríður Helga JónasdóttirSólveig Pétursdóttir og Þuríður Helga Jónasdóttir (Solla og Helga) eru búsettar á Hofsósi og stofnuðu Verðandi endurnýtingarmiðstöð. Markmiðið þeirra er gefa hlutum sem stendur til að henda nýtt líf með því að endurnýta þá og draga þannig úr sóun. Í þessum þætti segja þær okkur betur frá því hvað Verðandi Endurnýtingamiðstöð er, hvaða verkefni þær eru að fást við, hvað drýfur þær áfram og hvernig þær sjá framtíðina fyrir sér....more34minPlay
December 22, 2021Jóhann Daði GíslasonViðmælandi þáttarins að þessu sinni er viðburðastjórinn Jóhann Daði Gíslason. Hann hélt stærstu jólatónleika ársins í landshlutanum, Jólin heima, um miðjan desember í Varmahlíð. Í þættinum ræðir Jóhann við Helga Sæmund Guðmundsson um viðburðahald í landshlutanum. Þeir hafa báðir reynslu af slíku og ræða tækifærin og áskoranir og mikilvægi þess að halda menningarviðburði í heimabyggð þar sem tónlistarfólk fær tækifæri til að koma fram. Einnig var rætt um jólin í Skagafirði, hefðirnar og árlegu jóla viðburðina....more23minPlay
November 25, 2021Sandra GranquistSandra Granquist er búsett í Húnaþingi vestra. Hún er doktor í vistfræði sela, deildarstjóri selarannsóknardeildar Selaseturs Íslands og sérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun. Sandra er frá Svíþjóð en flutti til Íslands fyrir 24 árum. Hún segir okkur frá starfinu, áhugamálinu sem hefur undið aðeins upp á sig og hvernig er að búa á Norðurlandi vestra....more26minPlay
August 31, 2021Guðbjörg HalldórsdóttirGuðbjörg Halldórsdóttir flutti nýlega með manninum sínum og þremur börnum á Sauðárkrók. Hún hefur nú tekið til starfa sem leikskólastjóri á leikskólanum Ársölum. Hún segir okkur frá búferlaflutningunum, tækifærunum á Norðurlandi vestra og nýja starfinu....more18minPlay
July 21, 2021Edda BrynleifsdóttirEdda Brynleifsdóttir á og rekur verslunina Hitt og þetta á Blönduósi. Hún segir okkur frá versluninni, viðskiptavinum hennar, staðsetningunni og hvað henni líkar best við að búa á Blönduósi og á Norðurlandi vestra. Stutt en áhugavert spjall við konu sem lætur fátt stoppa sig....more20minPlay
June 09, 2021Sigurður HaukssonSigurður Hauksson, forstöðumaður skíðasvæði Tindastóls, hefur undanfarin ár búið í Bandaríkjunum en er nú búsettur í Skagafirði. Hann er stórhuga varðandi skíðasvæðið og stefnir að því að breyta svæðinu í heilsársstarfi með spennandi hjólabrautum....more30minPlay
May 20, 2021Sigrún Helga IndriðadóttirSigrún Helga Indriðadóttir er borin og barnfædd Skagfirðingur og býr á bænum Stórhóli í Lýtingsstaðahreppi. Sigrún er bóndi, listamaður og smáframleiðandi. Á Stórhóli er að finna Rúnalist Gallerí, en það er vinnustofa og lítil búð þar sem selt er handverk og afurðir búsins....more30minPlay
April 29, 2021Kristinn Gísli JónssonLandsliðskokkurinn Kristinn Gísli Jónsson hefur unnið fjölda verðlauna í matreiðslu og unnið á flottustu veitingastöðum landsins. Í hlaðvarpsþættinum segir hann okkur frá ævintýrum sínum sem kokkur en hann snéri aftur heim í Skagafjörð í heimsfaraldrinum og matreiðir nú á Gránu Bistro á Sauðárkróki....more19minPlay
FAQs about Fólkið á Norðurlandi vestra:How many episodes does Fólkið á Norðurlandi vestra have?The podcast currently has 42 episodes available.