Föngum viðskiptavini saman [Key of Marketing]

Föngum viðskiptavini saman [Key of Marketing]

By Key of MarketingBusinessMarketing
Download on the App Store

Föngum viðskiptavini saman [Key of Marketing] episodes

  • #9 Stafrænt Ísland - Vigdís Jóhannsdóttir

    Vigdís segir okkur frá starfsemi hjá Stafrænu Íslandi


    Vigdís Jóhannsdóttir er markaðsstjóri hjá Stafrænu Íslandi, stjórnarformaður Hannesarholts, formaður handknattleiksdeildar Víkings og í stjórn FKA eða Félag kvenna í atvinnulífinu.

    Áður starfaði hún hjá auglýsingastofunni Pipar, 365 miðlum og var kosningastjóri Höllu Tómasdóttur í forsetakosningunum árið 2016.

    - Key of Marketing

    49 min
  • #8 Nökkvi Fjalar

    Tony Robbins Íslands, hann hann Nökkvi Fjalar Orrason kom til okkar í hlaðvarpið Föngum viðskiptavini saman.

    Nökkvi hefur verið í sviðsljósinu á Íslandi fyrir hitt og þetta, á ferlinum hefur stefnan verið að hjálpa fólki að vera besta útgáfan af sjálfu sér.

    Í dag rekur hann Swipe sem er áhrifavalda umboðsskrifstofa sem leggur áherslu á TikTok. Nökkvi segir okkur frá ferlinum, 12:00, Áttunni, leikaraferlinum, áhrifavaldamarkaðssetningu, Swipe og hvernig Nökkvi Fjalar brandið varð Nökkvi Fjalar brandið.

    - Key of Marketing

    40 min
  • #7 1819 Torgið - Föngum viðskiptavini saman

    Við fengum Stefán Atla markaðsfulltrúa og Franz Gunnarsson sviðsstjóra hjá 1819 Torginu í heimsókn.

    Torgið er ný eining innan 1819 sem hefur verið í þróun síðustu 2 ár. Þeir segja okkur nánar frá því en Torgið er nýr viðskiptavettvangur þar sem þú færð allt sem þig vantar á besta verðinu.

    Þú getur náð þér í appið strax í dag

    Við fórum svo aðeins út fyrir efnið og töluðum um Metaverse, NFT og mögulega framtíð samfélagsmiðla.

    - Key of Marketing

    1 hr 3 min
  • Föngum viðskiptavini saman – 6. þáttur – Gísli Þorsteinsson

    Föngum viðskiptavini saman – 6. þáttur – Gísli Þorsteinsson

    Í þætti 6 af „Föngum viðskiptavini saman” fengum við hann Gísla Þorsteinsson til okkar, markaðsstjóra Gæðabakstur / Ömmubakstur.

    Gísli á farsælan feril að baki og starfaði m.a. í fleiri ár hjá Origo sem markaðsstjóri. Í þættinum segir hann okkur t.d. frá endurmörkun Nýherja sem við þekkjum í dag sem Origo ásamt fullt af góðum bransasögum og kemur inn á gagnleg ráð þegar kemur að markaðssetningu.

    - Key of Marketing

    59 min
  • Föngum viðskiptavini saman – 5. þáttur – Ósk Heiða

    Í þætti 5 af „Föngum viðskiptavini saman” fengum við hana Ósk Heiðu Sveinsdóttur til okkar, for­stöðumann þjón­ustu og markaða hjá Póst­in­um.

    Ósk er forvitin, orkumikil og hugmyndarík, í þættinum segir hún okkur frá leyndarmálinu sínu á bakvið að koma öllum þessum hugmyndum áfram og í framkvæmd.

    Hún hefur yfirgripsmikla reynslu af sölu og markaðsmálum meðal annars úr hátækni, ferðaþjónustu og smásölu. Ósk Heiða er með MSc gráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands og BSc í alþjóðamarkaðsfræði frá Tækniháskóla Íslands.

    - Key of Marketing

    35 min
  • Föngum viðskiptavini saman – 4. þáttur – Óli Jóns

    Í þætti 4 af „Föngum viðskiptavini saman” fengum við hann Ólaf Jónsson til okkar, sérfræðing í stafrænni markaðssetningu.

    Óli Jóns eins og hann er kallaður er einstaklega skemmtilegur gestur í hlaðvarpið og þekkir það vel, enda heldur hann sjálfur úti hlaðvarpsþáttum sem snúast um markaðsmál. Hann starfar í dag sem markaðsráðgjafi hjá Jons.is og er í hlutastarfi hjá Birtingahúsinu.

    Óli Jóns á afar farsælan feril að baki, hann hefur verið lykilmaður í markaðsstarfi hjá þekktum fyrirtækjum í mismunandi geirum, unnið sjálfstætt og í stærri teymum.

    Í þættinum segir Óli frá því hvernig hann fór frá því að vera bílstjóri hjá Íslenska Gámafélaginu yfir í að vera eftirsóttur markaðsráðgjafi á Íslandi.

    - Key of Marketing

    51 min
  • Föngum viðskiptavini saman - 3. þáttur - Elfa Ragnarsdóttir

    Í þætti 3 af „Föngum viðskiptavini saman" fengum við hana Elfu Ragnarsdóttur til okkar. Elfa tekur þátt í uppbyggingu á nýrri bókunarsíðu fyrir ferðaiðnaðinn sem sölustjóri Ferðaeyjunnar.

    Í þættinum förum við yfir hugmyndina á bakvið Ferðaeyjuna, hvernig þau sinna kynningarmálum og fáum innsýn inn í frumkvöðlastarfið.

    - Key of Marketing

    20 min
  • Föngum viðskiptavini saman - 2. þáttur - Anna Bára Teitsdóttir

    Í þætti 2 af „Föngum viðskiptavini saman" fengum við hana Önnu Báru til okkar. Anna Bára starfar við markaðsþróun hjá Eflu sem er ein stærsta verkfræðistofa landsins.  

    Í þættinum förum við yfir teymisvinnu, efnismarkaðssetningu, LinkedIn, stafræna markaðssetningu og margt fleira.  

    - Key of Marketing

    35 min

About Föngum viðskiptavini saman [Key of Marketing]

From the publisher's feed

Auglýsingastofan Key of Marketing heldur úti hlaðvarpinu Föngum viðskiptavini saman.