
Sign up to save your podcasts
Or


Gestur þáttarins er Olga Ýr Björgvinsdóttur, ein af stjórnendum líftæknifyrirtækisins Arctic Therapeutics og sérfræðingur í forystu og stjórnun. Í þættinum er m.a. fjallað um ólíka leiðtogastíla, og þ.á.m. rannsókn hennar á leiðtogastílum í líftæknifyrirtækjum. Einnig er komið inná hluti eins og hvað einkennir farsæla leiðtoga og mikilvægi þess að starfa sem öflugt teymi. Margir fletir faglegrar forystu eru ræddir, þ.á.m. frá Brene Brown og Simon Sinek. Einnig segir Olga Ýr okkur frá bók sem hún mælir með sem heitir Surrounded by idiots eftir Thomas Ericsson. Að lokum má nefna að við ræðum um gæðastjórnun og hvort hún sé sexý eður ei.
Gestur: Edda Björgvinsdóttir, leikari, leikstjóri, skemmtikraftur, fyrirlesari, stjórnendaþjálfari og gersemi þjóðarinnar. Edda hefur líka skrifað meistararitgerð um húmor í stjórnun ásamt að vera með diplómagráðu í jákvæðri sálfræði og sálgæslu frá Háskóla Íslands.
Gestur Sigurðar í þættinum er Haraldur Daði Ragnarsson, stofnandi og einn af eigendum markaðsstofunnar Manhattan Marketing og lektor við Háskólann á Bifröst, stjórnunarráðgjafi og einn fremsti sérfræðingur landsins í forystufræðum, stefnumótun, breytingastjórnun og í stjórnun viðskiptatengsla (CRM). Í þættinum er sérstaklega rætt um og áhersla á faglega eða árangursríka forystu og hvers vegna fleiri stjórnendur og leiðtogar eru ekki að nýta sér hana. Það er komið inná ótal þætti sem tengjast þessu eins og forystu í teymum og hvað einkennir afburðagott forystufólk. Hann fjallar einnig um viðhorfið ,,ég á þetta… ég má þetta” sem hann telur alltof algengt, og einnig að stór hluti stjórnenda á Íslandi geti gert mun betur til að vera starfi sínu vaxnir og sýni í verki alvöru umhyggju fyrir auðlindinni sem starfsfólkið er. Einnig deilir Haraldur með okkur og segir frá nokkrum stjórnunarbókum sem hann mælir sérstaklega með.
Síðan var ekki annað hægt en að koma aðeins inná fortíð okkar í útvarpinu þ.s. við bræður vorum saman með morgunþátt, bæði á Bylgjunni og á FM957.
Forysta og samskipti: Hvað er gervigreind og hvers vegna þurfum við að tileinka okkur hana? - Gervigreindin mælir með að þú missir ekki af þessum þætti…
Gestur Sigurðar í þættinum er Rebekka Kristín Garðarsdóttir, forstöðukona og verkefnastjóri hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Wise. Rebekka Kristín hefur yfir 20 ára reynslu sem stjórnandi og forystumanneskja. Hún starfar nú hjá Wise en starfaði meðal annars áður í Hong Kong sem stjórnandi hjá LinkedIn og Microsoft, auk þess sem hún stofnaði og rak fyrirtæki þar ytra. Margt kemur til tals, eins og munurinn á að vera stjórnandi og leiðtogi auk þess sem rætt er um verkefnastjórnun. Einnig segir Rebekka Kristín frá tíma sínum hjá LinkedIn og Microsoft og lýsir þar til dæmis einstöku starfsumhverfi þar sem afar mikil krafa var gerð á árangur samhliða að hugað var að vellíðan starfsfólks. Rebekka Kristín ræðir einnig muninn á að vera forystumanneskja í Kína og á Íslandi.
Gestur Sigurðar í þættinum er Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri. Grétar Þór hefur viðamikla reynslu sem stjórnandi, fræðimaður og kennari. Hann er t.d. fyrrum forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri og hefur sinnt stjórnmálaskýringum í fjölmiðlum í áraraðir.
Kjartan er hafsjór af reynslu og fróðleik og ræðir og fræðir okkur um allskonar hluti á sviði nýsköpunar og frumkvöðlamennsku, þ.á.m. félagslega nýsköpun (e. Social innovation) og hvað einkennir afburða frumkvöðla. Í tengslum við samskipti og nýsköpunar- og frumkvöðlahugsun undirstrikar hann meðal annars mikilvægi þess að stjórnendur tali við starfsfólkið sitt. Einnig er komið inná fortíð Kjartans sem er margþætt en hefur nýst honum vel í leik og starfi. Hann hefur starfað fyrir mörg fyrirtæki sem og kennt og starfað við fleiri háskóla, þ.á.m. Háskólann í Reykjavík og University of Twente í Hollandi. Einnig segir Kjartan okkur frá samstarfinu við Drift EA, sem er sjálfstætt og óhagnaðardrifið félag um nýsköpun og frumkvöðlastarf sem nýlega varð að veruleika.
Gestur Sigurðar í þættinum er Eyjólfur Guðmundsson fráfarandi rektor Háskólans á Akureyri.
Eyjólfur hefur verið rektor HA síðustu tíu ár. Áður var hann sviðsstjóri greiningar og aðalhagfræðingur hjá tölvuleikjafyrirtækinu CCP; og þar áður forseti viðskipta- og raunvísindadeildar HA. Eyjólfur segir okkur frá ýmsum þáttum í starfi sínu, til dæmis hvað skiptir mestu máli í tengslum við að leiða og taka ákvarðanir. Hann lýsir einnig þremur megin áskorunum í starfi sínu sem rektor: Í fyrsta lagi eru það samskiptin við stjórnvöld; í öðru lagi stjórnun í akademísku samfélagi; og í þriðja lagi, sú áskorun að standa sig í hinu alþjóðlega samhengi. Margt fleira kemur til tals eins og möguleg sameining við Háskólann á Bifröst og háskólaumhverfi framtíðarinnar sem hann telur verða mikið breytt miðað við í dag, það verði mun hraðara og dýnamískra. Eyjólfur tengir meðal annars gervigreindina við þessar breytingar.
Í tengslum við umræðu um forystu og stjórnun tekur Eyjólfur dæmi um marga leiðtoga, eins og Elon Musk, Steve Jobs, Angelu Merkel, Winston Churchill og fleiri. Um áskorun í starfi varðandi samskipti við stjórnvöld segir Eyjólfur meðal annars: ,,Svo ég orði það pent, þá erum við alltaf í baráttu við að fá viðurkenningu, eiginlega viðurkenningu þess að við séum stofnun þess virði fyrir suðurvaldið, ég kalla það suðurvaldið, að veita okkur athygli. Það getur verið mjög mismunandi eftir ráðherrum, það getur verið mjög mismunandi eftir tímabilum; hefur stórbatnað á þessum 10 árum en á sama tíma er það svolítið ennþá fast í sama fari.“ Einnig má nefna að Eyjólfur lýsir því hvernig, að hans mati, jafningjastjórnun gengur ekki upp í háskólaumhverfinu.
Gestur Sigurðar í þessum þætti er Grétar Þór Eyþórsson, forseti Viðskiptadeildar HA og prófessor í stjórnmálafræði. Grétar Þór hefur leitt starf Viðskiptadeildar HA síðustu fjögur ár og hefur viðamikla reynslu sem stjórnandi, fræðimaður og kennari. Hann er t.d. fyrrum forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri og hefur sinnt stjórnmálaskýringum í fjölmiðlum í áraraðir. Grétar Þór hefur því mikla reynslu þegar kemur að forsetakosningum á Íslandi og þekkir vel sögu þeirra og hlutverk forsetans. Hann ræðir m.a. hvað er frábrugðið við þessar kosningar í samanburði við fyrri kosningar. Farið er yfir hóp þeirra frambjóðenda sem virðast helst koma til greina og velt fyrir sér stöðu þeirra og möguleikum. Margt fleira kemur til tals eins og hvað einkennir góðan forseta og hvernig baráttan mögulega þróast fram að kosningum. Einnig er leitað svara við spurningum eins og ,,hvers vegna er mikilvægt fyrir forseta að hlusta?“ og ,,hvaða forystuhæfileikar skipta máli?“
Gestur Sigurðar í þessum þætti er Hildigunnur Svavarsdóttir forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri. Hildigunnur hefur viðamikla reynslu sem stjórnandi og forystumanneskja og er m.a. fyrrum framkvæmdastjóri á Sjúkrahúsinu á Akureyri og fyrrum skólastjóri Sjúkraflutningaskólans auk þess sem hún hefur verið formaður Landssambands heilbrigðisstofnana og setið í stjórnum fagfélaga hérlendis sem erlendis. Hún starfaði einnig lengi sem lektor við Háskólann á Akureyri. Hildigunnur segir okkur frá ýmsum þáttum í starfi sínu á sviði forystu og samskipta, og ræðir m.a. hvernig má byggja upp öflug teymi. Hún kemur líka inná mikilvægi þess að nota mýkt við að leiða og hvað felst í leiðtogafærni. Margt fleira kemur til tals eins og mikilvægi þess að hafa bæði trú á sjálfum sér og öðrum og að deila ábyrgð til þess að valdefla fólk.
From the publisher's feed