Í dag mætast vinirnir Arnaldur og Birna Rut í Hljómboxinu, ásamt mæðrum sínum. Hvor er fljótari að þekkja raddir fræga fólksins? Hvor þekkir frægar senur úr bíómyndum betur? Jafnvel þegar það er búið að þýða þær yfir á íslensku? Við heyrum líka lög spiluð í skrítum útsetningum, afturábak og áfram. Æsispennandi viðureign í Hljómboxinu, eins og alltaf!
Keppendur:
Arnaldur Gunnarsson (Fossagaukar)
Edda Sólveig Gísladóttir (Fossagaukar)
Birna Rut Guðmundsdóttir (Snjódívur)
Lára Guðrún Jónsdóttir (Snjódívur)
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir
Leikarar: Rúnar Freyr Gíslason, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Karl Pálsson
Hljóðvinnsla: Georg Magnússon