Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Besta, bestir í Lengju og HM
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 4. júlí. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars.
    Byrjað er á íslenska boltanum. Besta deildin, tíðindi tengd henni og Víkingur er á leið í erfitt Evrópueinvígi. Svo er það Lengjudeildin sem fær sviðsljósið og opinberað er val á úrvalsliði umferða 1-11.
    Í seinasta hluta þáttarins er farið yfir 32-liða úrslit HM og spáð í spilin fyrir 16-liða úrslitin.
    1 hr 52 min
  • HM hringborðið: Söguleg stund fyrir Ronaldo og uppáhalds HM leikmenn
    HM hringborðið á föstudegi. Jóhann Páll Ástvaldsson íþróttafréttamaður á Rúv og Óskar Smári Haraldsson þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar voru gestir að þessu sinni.
    Þeir fóru yfir úrslit síðustu leikja og spáðu í spilin fyrir leikina þrjá sem eftir eru í 32-liða úrslitum. Þá fóru þeir jafnframt yfir sína uppáhalds HM leikmenn.
    0 min
  • HM hringborðið: Ronaldo í fullu fjöri og uppáhalds HM leikmenn
    HM hringborðið á föstudegi. Jóhann Páll Ástvaldsson íþróttafréttamaður á Rúv og Óskar Smári Haraldsson þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar voru gestir í setti.
    Þeir fóru yfir úrslit síðustu leikja og spáðu í spilin fyrir komandi leiki. Þá fóru þeir jafnframt yfir sína uppáhalds leikmenn af HM.
    47 min
  • HM hringborðið: Sævarssynir fara yfir 32-liða úrslitin
    Bræðurnir Birkir Már og Aron Elí Sævarssynir voru gestir HM hringborðsins að þessu sinni. Þeir fóru yfir liðna leiki í 32-liða úrslitum og spáðu í spilin fyrir komandi leiki.
    Þá fór Birkir jafnframt yfir sigur Íslands á Englandi og heimsmeistaramótið í Rússlandi 2018.
    47 min
  • Uppbótartíminn í mynd - Kristianstad, pælingar með Nik og slúður
    Það er landsleikjahlé í Bestu deild kvenna en við gefum út aukaþátt af Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann, þessa vikuna.
    Nik Chamberlain, þjálfari Kristianstad í Svíþjóð, er í heimsókn á Íslandi og hann mætti í þáttinn til að fara yfir tíma sinn hjá Kristianstad til þessa.
    Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll Garðarsson og Nik fóru einnig yfir tölfræði úr Bestu deildinni, leikstíla og aðrar pælingar. Þá var farið yfir slúður í lok þáttarins en það styttist í að leikmannaglugginn á Íslandi opni.
    Þátturinn er í boði Vinnupalla, Atlantsolíu og Coke.
    50 min
  • Innkastið - Hemmi rekinn, Akureyri í frjálsu falli og Blikar nálgast bikar
    Innkastið eftir tólftu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn.
    Hermann Hreiðarsson var látinn taka pokann sinn eftir sigur Vals gegn Þór, Akureyri er í frjálsu falli, Keflavík vann KR og umferðinni lauk með leik ÍA og Fram á Akranesi.
    Þá er fjallað um sigur Breiðabliks gegn Víkingi í undanúrslitum bikarsins og einnig er Lengjudeildarhorn.
    0 min
  • Harkið - Skandall í Sandgerði
    Harkið fór yfir stærstu atvikin í 10 umferð 2. og 3.deildar karla og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum auk þess var farið yfir verstu velli í 2. og 3. deild.
    -Uppgjör 3.deildar - 07:50
    -Uppgjör 2.deildar - 37:50
    -Spá og leikmaður umferðarinnar - 01:08 :00
    Harkið er í samstarfi með Serrano og AB Sportvörum.
    Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
    1 hr 17 min
  • Útvarpsþátturinn - Sá glaðasti og úrvalslið 1-11
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi á föstudegi þessa vikuna. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Víkingar voru ekki sáttir þrátt fyrir 4-1 sigur í Kópavogi, úrvalslið umferða 1-11 í Bestu deildinni er opinberað... og líka vonbrigðaliðið!
    Gestur þáttarins er Óskar Borgþórsson sem hefur verið gjörsamlega frábær með Víkingum.
    Þá er sigur Íslands gegn Englandi 2016 rifjaður upp og farið yfir gang mála á heimsmeistaramótinu sem nú stendur yfir.
    1 hr 38 min