
Sign up to save your podcasts
Or


Gervigreindin getur látið manni líða eins og snillingi, jafnvel þegar vinnan er í raun verri. Við förum yfir það sem við prófuðum sjálf í sumar og spyrjum hvort vélin hjálpi okkur að hugsa skýrar eða sé hægt og rólega farin að hugsa fyrir okkur.
Við ræðum líka mikilvægi gervigreindarlæsis, að skilja ekki bara hvað tæknin getur gert heldur líka hvenær við eigum að treysta henni, efast um hana og hugsa sjálf.
Gestur þáttarins er Þórunn Vignisdóttir, sem kennir börnum og foreldrum um gervigreind. Með henni ræðum við meðal annars hvers vegna AI-læsi snýst ekki bara um að kunna að nota tæknina, heldur líka að kunna að efast, athuga hvort svör standist og vita hvenær við eigum að treysta eigin dómgreind.
Framvindan er íslenskt hlaðvarp um tækni og gervigreind, tekið upp í Stokkhólmi og framleitt af Strange Loops.
Við höfum beðið lengi eftir vélmennum sem geta gengið inn í okkar mannlega veruleika.
Hollywood hefur lengi lofað okkur að það sé mögulegt.
Á sama tíma eru milljónir manna í tilfinningatengslum við hugbúnað sem er bara texti á skjá.
Í þessum þætti ræðum við um samband manneskju og vélar og hvers vegna iðnaðurinn heldur áfram að elta manngerð vélmenni.
Við förum frá vélmenna draumum og vonum yfir í hvað sé í raun og veru verið að byggja í dag. Við skoðum það útfrá óþægilegum spurningum um samþykki, einmanaleika og þörfina fyrir nálægð.
Er sálin þegar komin í hugbúnaðinn, eða erum við enn að bíða eftir hulstrinu eða líkamanum sem fullkomnar sköpunarverkið?
Tæki og tól vikunnar
Wispr Flow
AI-knúin raddritun sem virkar í hvaða appi sem er. Þú heldur niðri flýtilykli, talar eðlilega, og hún hreinsar fylliorð og setur inn greinarmerki á meðan þú talar.
https://wisprflow.ai
Msty
Skrifborðsapp fyrir þau sem vilja prófa staðbundin AI-módel á einum stað, án þess að þurfa að kunna forritun.
https://msty.ai
Heimildir
Realbotix: https://realbotix.com
1X NEO: https://www.1x.tech
Paro: http://www.parorobots.com
Harper o.fl. um eigendur sex robots: https://link.springer.com/article/10.1007/s10508-022-02340-5
Stanford um Replika-notendur: https://hai.stanford.edu
FDA um Paro: https://www.fda.gov/medical-devices
METI um umönnun í Japan: https://www.meti.go.jp/english/
Þátturinn er tekinn framleiddur af Strange Loops productions.
Spjallbotti getur í dag verið ráðgjafi, vinur, þerapisti og jafnvel rómantískur félagi. Hún svarar samstundis, er alltaf tiltæk og virðist hlusta án þess að dæma.
En hvað gerist þegar fólk fer að leita til véla eftir nánd, skilningi og tilfinningalegum stuðningi?
Og hvar liggja mörkin milli gagnlegs hjálpartækis og sambands sem byrjar að taka pláss frá raunverulegum tengslum?
Við ræðum hvernig fólk er farið að mynda raunveruleg tilfinningatengsl við gervigreind og hvers vegna þessi samskipti geta orðið bæði persónuleg og djúp. Við skoðum hvað það er sem gerir gervigreind svona sannfærandi í hlutverki ráðgjafa, hlustanda eða félaga.
Pétur Maack Þorsteinsson sálfræðingur kemur í þáttinn og við spjöllum um hvað gerist þegar samtöl við vélar byrja að uppfylla félagslegar og tilfinningalegar þarfir sem áður sóttust eingöngu í mannleg tengsl. Við skoðum hvernig þessi þróun getur haft áhrif á nánd, sjálfsmynd og væntingar okkar til samskipta.
Við förum yfir hvernig þessi tækni er þegar farin að hafa áhrif á sambönd, geðheilbrigði og daglegt líf, hvaða tækifæri og hættur felast í þessari þróun og hvers vegna umræðan um mörk, ábyrgð og mannleg tengsl verður sífellt mikilvægari.
Heimildir:
Þátturinn er tekinn upp í útibúi Klakinn Studíó í Stokkhólmi
Gervigreind getur í dag búið til myndir, teikningar og myndskeið á sekúndum, oft í stíl sem tekur listamenn ár að móta. Hraðinn er nýr. Umfangið er nýtt og þróunin hröð.
Svo af hverju er umræðan um höfundarétt, eignarhald og gildi listar enn svona óljós?
Við ræðum regluverkið og hvaða breytingar eru fram undan. Myndhöfundurinn Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir kemur í þáttinn og við spjöllum um hvernig þessi þróun hefur áhrif á hennar vinnu. Við skoðum hvað gerist þegar myndir, teikningar og málverk færast inn í heim algríma og hvernig það umbreytir hlutverki höfundarins.
Við förum yfir tækin og tólin sem eru að móta þessa þróun, hvað virkar í raun og hvar áskoranirnar liggja. Og við leikum okkur líka: sjálfsmyndabreytingar, dagatal búið til með AI, gamlar myndir gerðar lifandi og spurningin sem fylgir öllu þessu. Hvað er raunverulegt lengur?
Í þessum þætti
Við leikum okkur:
Við tölum um:
Tæki og tól vikunnar
Whispr Flow — raddgreining sem breytir tali í fullkláraðar setningar í hvaða app sem er. wisprflow.ai
Replicate — keyra og fínstilla AI líkön í eigin verkefnum, án þess að nota kóða. replicate.com
Nano banana í Google Gemini myndir í spjallbottinum. Þú verður að prófa þetta sjálfur.
Higgsfield — Plattformur fyrir AI mynda- og myndbandsgerð. Búðu til myndir, breyttu þér í ólíkar persónur, og gerðu myndbönd með tæknibrellum, allt með einum smelli. higgsfield.ai
Structured — skipulagningsapp sem sameinar verkefnalista, dagatal og gamification á einni tímalínu. structured.app
Þátturinn er tekinn upp í útibúi Klakinn Studíó í Stokkhólmi
Harvard prófessor lætur 180 nemendum prufa tvær aðferðir til að læra námsefnið. Fyrst fer hópurinn á fyrirlestur með kennara. Síðan fær hópurinn að læra heima með gervigreindarkennara. Eins próf í lokinn. Gervigreindin vann, og hópurinn lærði tvöfalt meira á færri mínútum.
Svo af hverju breytist ekkert í menntakerfinu?
Í þessum þætti förum við inn í þetta samtal með Birni Kristjánssyni kennara. Hann er hluti af opinberu tilraunaverkefni sem er að innleiða gervigreind í grunnskóla í Reykjavík akkúrat núna. Við heyrum hvað virkar í raun, hvað er erfitt og hvað kennararnir segja.
Við ræðum Harvard rannsóknina sem fæstir tóku mark á, MIT gögnin um 47% samdrátt í taugatengingum, stýrandi notkun gegn verkfæranotkun og Gunnur kynnir þrjá persónulega Claude útsendara og ráðgjafa sem hún notar daglega: heilsuráðgjafann, fjárhagsráðgjafann og verkefnastjórann.
Tæki og tól:
Frekara lesefni:
Þátturinn er tekinn upp í útibúi Klakinn Studíó í Stokkhólmi
Í október 2021 breytti Mark Zuckerberg nafni Facebook í Meta. Hann lofaði okkur nýju interneti, heimsbyggð þar sem við myndum vinna, kynnast og lifa lífi okkar sem avatar í sýndarveruleika.
Meta tapaði yfir 83 milljörðum króna á þessum draumi. Samt fór hlutabréfaverðið upp um 3,5% daginn sem fyrirtækið tilkynnti niðurskurð.
Í nýjasta þætti af Framvindu skoðum við hvað gerðist í raun og hvert sýndarveruleikinn er að fara.
Í þættinum:
Hlustaðu á þáttinn og sjáðu hvert þetta er allt að stefna.
Tæki og tól:
Þátturinn er tekinn upp í útibúi Klakinn Studíó í Stokkhólmi.
#Framvindan #VR #Tækni #AI #sýndarveruleiki #AIgleraugu
Kvikmyndaiðnaðurinn er að breytast hratt. Og fólk vill upplifa eitthvað meira en hefðbundið bíó.
Við erum ekki lengur sátt við að sitja kyrr og horfa á skjá. Við viljum upplifa og vera inni í sögunni.
Í nýjasta þætti af Framvindu skoðum við hvernig tæknin er að umbreyta kvikmyndagerð:
Horfðu eða hlustaðu á þáttinn og sjáðu hvert þetta er allt að stefna.
Tæki og tól:
• Claude (AI assistant): claude.ai
• Whisper by OpenAI): whisperai.com
• Meshy (3D character creation from images and drawings): meshy.ai
• Mixamo (3D character rigging and animation): mixamo.com
Þátturinn er tekinn upp í útibúi Klakinn Studíó í Stokkhólmi
#Framvindan #Kvikmyndir #Tækni #AI
Í fyrsta þætti Framvindu tökum við á stóru spurningunni: eru íslensk fyrirtæki virkilega leiðandi í notkun gervigreindar, eða er bara einn maður með ChatGPT á hverju skrifstofu?
Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands nota 50% fyrirtækja einhvers konar gervigreindartækni, en aðeins 14% hafa mótað sér formlega stefnu. Við ræðum hvað þessar tölur þýða í raun, berum þær saman við Svíþjóð og Bandaríkin, og deilum tólunum sem eru að spara okkur mestan tíma núna.
Tenglar og tól:
Þátturinn er tekinn upp í útibúi Klakinn Studíó í Stokkhólmi
From the publisher's feed