Sign up to save your podcasts
Or

Friðrik Ólafsson er gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti. Friðrik varð fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák árið 1958. Hann er þekktasti og sterkasti skákmeistari sem Íslendingar hafa eignast og var á meðal sterkustu skákmanna heims á sínum tíma. Friðrik var forseti Alþjóða skáksambandsins (FIDE) frá 1978 til 1982. Hann á glæsilegan starfsferil að baki og hefur hlotið fjölda viðurkenninga. Á sunnudaginn kemur eða þann 26. janúar fagnar Friðrik 90 ára stórafmæli sínu. Af því tilefni verður opið hús í Hörpu. Samkoman hefst kl. 16:00 og þætti meistaranum vænt um að sjá sem flesta. Hlusta má á viðtalið í spilaranum.
Friðrik Ólafsson: Af vef Skáksögufélagsins.
Menntun: Stúdentspróf frá MR 1955. Lögfræðipróf frá HÍ 1968.
Starfsferill: Fulltrúi í dómsmálaráðuneytinu 1968-1974. Forseti Alþjóðaskáksambandsins (FIDE) 1978-1982. Ritstjóri Lagasafns Íslands 1982-1983. Skrifstofustjóri Alþingis frá 1984. Varð sex sinnum Íslandsmeistari í skák, fyrst 1952, og Norðurlandameistari í skák 1953 og 1971. Alþjóðlegur skákmeistari 1956 og fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák 1958. Varð sigurvegari á skákmótinu í Hastings 1955-1956, í Beverwijk í Hollandi 1959, Í Marianske Kasne í Tékkóslóvakíu 1961, á alþjóðlegum skákmótum í Reykjavík 1966, 1972 og 1976 og á Wijk an Zee í Hollandi 1975. Veitti forstöðu Skákskóla Friðriks Ólafssonar 1982-1984. Sat í nefnd á vegum menntamálaráðuneytisins 1989 sem vann að undirbúningi frumvarps til laga um Skákskóla Íslands og stórmeistaralaun.
Ritstörf: Lærið að tefla, kennslubók í skák, ásamt Ingvari Ásmundssyni, 1958. Heimsmeistaraeinvígið í skák 1972, ásamt Freysteini Jóhannssyni, 1972. Við skákborðið í aldarfjórðung, 1976. Auk þess fjöldi greina um skák í tímaritum og dagblöðum.
Viðurkenningar: Sæmdur titlinum alþjóðlegur stórmeistari í skák 1958, fyrstur Íslendinga. Riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu 1972 og stórriddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu 1980. Gerður að heiðursborgara Reykjavíkur og aðalheiðursfélaga FIDE, 2015.
By Útvarp SagaFriðrik Ólafsson er gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti. Friðrik varð fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák árið 1958. Hann er þekktasti og sterkasti skákmeistari sem Íslendingar hafa eignast og var á meðal sterkustu skákmanna heims á sínum tíma. Friðrik var forseti Alþjóða skáksambandsins (FIDE) frá 1978 til 1982. Hann á glæsilegan starfsferil að baki og hefur hlotið fjölda viðurkenninga. Á sunnudaginn kemur eða þann 26. janúar fagnar Friðrik 90 ára stórafmæli sínu. Af því tilefni verður opið hús í Hörpu. Samkoman hefst kl. 16:00 og þætti meistaranum vænt um að sjá sem flesta. Hlusta má á viðtalið í spilaranum.