
Sign up to save your podcasts
Or


Skemmtilegar skáksögur, dómaralíf og félagsskapurinn í Taflfélagi Reykjavíkur eru í fyrirrúmi þegar Kristján Örn Elíasson tekur á móti Ólafi S. Ásgrímssyni, fyrrverandi bankamanni, og Jon Olav Fivelstad, tölvunarfræðingi. Þeir eru báðir alþjóðlegir skákdómarar og hafa um árabil tekið þátt í íslensku skáklífi.
Ólafur rifjar upp eftirminnileg skákmót, kynni af stórmeisturum og tímana þegar skákir fóru í bið og greiningar héldu áfram langt fram á nótt. Meðal annars kemur við sögu óvenjustutt leigubílsferð á Húsavík og biðskák sem reyndi á þolinmæði fréttamanns. Einnig er rætt um skákklukkur, viðbótartíma og álagið sem fylgir þéttri mótadagskrá.
Birnukaffi fær sinn sess í samtalinu, en Birna Halldórsdóttir, eiginkona Ólafs, sá þar um vinsælar veitingar í húsnæði TR um árabil. Þeir félagar minnast vafflanna, tertnanna og hlýjunnar sem beið manna yfir kaffibolla, jafnvel eftir sárt tap.
Jon Olav segir frá upphafi skákáhugans í Noregi og dómgæslu á Evrópumóti heyrnarskertra í Stavanger, þar sem samskipti, túlkun og aðlögun að þörfum keppenda voru mikilvægur hluti starfsins. Þá er rætt um minningarmót Friðriks Ólafssonar og undir lokin vikið stuttlega að raforkuverði og lánamálum í Noregi og á Íslandi.
Umsjón: Kristján Örn Elíasson, alþjóðlegur skákdómari.
Það er fleira á borðinu en taflmenn þegar Sveinbjörn Jónsson sest niður með Kristjáni Erni Elíassyni. Sveinbjörn er Súgfirðingur, skákáhugamaður og hagyrðingur, fyrrverandi kennari og trillukarl sem hefur komið víða við. Í léttu og líflegu spjalli fléttast saman skák og vestfirskt mannlíf, kennsla, sjómennska og sköpunargleði. Rifjaðar eru upp minningar og rætt um áhugamálin sem fylgja manni í gegnum lífið. Tónlist fær líka sinn sess þegar lögin „Það er nú það“ og „Stefjahreimur“ hljóma í þættinum.
Það er nóg um að vera í skákheiminum þessa dagana! Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson sest við skákborðið hjá Kristjáni Erni Elíassyni og fer yfir það helsta sem gerðist á Íslandsmóti skákfélaga um síðustu helgi.
TR er á toppnum, en hvernig verður framhaldið? Hvaða skákmenn komu mest á óvart og hverjir eru líklegir til afreka í vor?
Síðan er sjónum beint út í heim, þar sem Caruana er í sviðsljósinu, Evrópumót taflfélaga fram undan og tveir tvítugir stórmeistarar búa sig undir að berjast um heimsmeistaratitilinn.
Og hvað með 49 ára gamla stórmeistarann sem fór til Búdapest án þess að fjölmiðlar tækju eftir því? Þursaflokkurinn á lokaorðið.
Gestir Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum eru Gauti Páll Jónsson, ritstjóri tímaritsins Skákar, sem kemur inn símleiðis, og Gunnar Freyr Rúnarsson, formaður Víkingaklúbbsins, sem situr með Kristjáni í stúdíóinu.
Gauti Páll segir stuttlega frá næsta tölublaði Skákar og spáir síðan fyrir um úrslit í öllum deildum Íslandsmóts skákfélaga. Sérstaklega er rætt um „stóru liðin“ í 1. deild – Víkingaklúbbinn, Skákfélag Akureyrar og Dímon – og hvaða lið sé líklegast til að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni.
Gunnar Freyr segir frá starfi sínu á Kleppi og ræðir af varfærni hvað starfið hefur kennt honum um að lesa aðstæður, halda ró sinni undir álagi og sýna fólki virðingu. Samtalið berst einnig að Víkingaklúbbnum, liðsheildinni og undirbúningi félagsins fyrir Evrópumót taflfélaga, þangað sem Gunnar heldur með liði sínu.
Fleiri íslensk lið verða á meðal þátttakenda á Evrópumótinu. Þar á meðal er Skákfélag Akureyrar með blandaða sveit, skipaða skákmönnum úr fleiri en einu félagi og Breiðablik sem senda mun tvær sveitir. Að vanda þróast samtalið síðan í ýmsar óvæntar áttir – um skáklífið, félagsandann, metnaðinn og allt það sem gerist bæði við og handan skákborðsins.
Björn Þorfinnsson, alþjóðlegur skákmeistari og fjölmiðlamaður, er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum.
Þátturinn hefst á léttu spjalli um veru Björns í Bítinu á Sýn, þar sem hann hefur verið að leysti Heimi Karlsson af síðustu dagana. Þaðan liggur leiðin yfir á nýafstaðið Ólympíuskákmót, þar sem rætt er um gengi íslensku liðanna, frammistöðu einstakra skákmanna og meðal annars erfitt mót Hannesar Hlífars Stefánssonar.
Farið er yfir hvaða lönd lentu í verðlaunasætum bæði í opna flokknum og kvennaflokki og rætt um mikinn uppgang Asíuþjóða í skákheiminum. Sérstaklega er staldrað við mikla grósku í Úsbekistan, þar sem skák hefur notið öflugs stuðnings. Björn segir meðal annars frá veglegum verðlaunum sem skákmenn þar hafa fengið fyrir framúrskarandi árangur, svo sem peningaverðlaunum, íbúðum og bílum.
Að lokum er horft fram á veginn og rætt um Íslandsmót skákfélaga, sem hefst í næstu viku.
Í lok þáttar velur Björn lagið „July“ með Noah Cyrus og segir frá því hvernig hann kynntist laginu þegar dóttir hans hlustaði á það í bílnum á leiðinni í skólann. Smám saman fór hann sjálfur að kunna vel að meta bæði lagið og flytjandann.
Gestir Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum eru Björn Þorfinnsson, alþjóðlegur meistari í skák og fyrrverandi ritstjóri DV, Gunnar Freyr Rúnarsson, formaður Víkingaklúbbsins, Sigurður Þórðarson, skákáhugamaður og fyrrverandi stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni, og Haukur Hauksson, fréttaritari Útvarps Sögu.
Björn kemur símleiðis inn í þáttinn og ræðir Ólympíumótið í skák og gengi íslensku liðanna þegar sjöunda umferð stendur yfir og fjórar umferðir eru eftir. Einnig er farið yfir Haustmót Taflfélags Reykjavíkur, þar sem ungir skákmenn vöktu mikla athygli. Jósef Ómarsson, 15 ára, sigraði í A-flokki og hinn aðeins átta ára gamli Helgi Fannar Óðinsson vann opna flokkinn.
Í þættinum er einnig fjallað um þátttökubann rússneskra og hvítrússneskra landsliða og í því samhengi velt upp hvort kjörorð FIDE, „Gens una sumus“ – við erum ein fjölskylda – standist þegar stríð, stjórnmál og trúarbrögð teygja anga sína inn í skákheiminn.
Þá er fjallað um þá óvenjulegu ákvörðun beggja ísraelsku landsliðanna að gefa viðureignir sínar í sjöttu umferð vegna Jom kippúr, helgasta dags gyðingdómsins, eftir að ekki náðist samkomulag um breyttan keppnistíma.
Björgvin Víglundsson, skákmeistari og fyrrverandi landsliðsmaður, er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar. Þeir ræða Ólympíuskákmótið sem nú er hafið, skipan íslensku liðanna og fyrstu andstæðinga þeirra. Íslensku sveitirnar eru töluvert stigahærri á öllum borðum í fyrstu umferðinni og standa því frammi fyrir nánast skyldusigri.
Björgvin segir jafnframt frá Mikhail Botvinnik, einum áhrifamesta heimsmeistara skáksögunnar, og fer yfir styrkleika hans, veikleika, persónuleika og einvígi um heimsmeistaratitilinn. Einnig er rætt um væntanlegt heimsmeistaraeinvígi Gukesh og Sindarovs og mat Magnusar Carlsen á keppendunum.
Að lokum kynnir Björgvin athyglisverða hugmynd að nýju keppnisformi. Þar myndu skákmenn ekki hefja allar skákir á hefðbundinni upphafsstöðu heldur í jafnri stöðu, valinni af tölvu, sem gæti samsvarað stöðu eftir 10–20 leiki. Þannig reyndi strax á stöðumat, útreikninga og skákhæfileika keppenda í stað þess að fyrstu leikirnir réðust að stórum hluta af fyrirfram lærðri byrjanaþekkingu.
Magnús Pálmi Örnólfsson, skákmeistari og hagfræðingur með MBA-gráðu, er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar.
Magnús lítur yfir viðburðaríkt sumar og segir meðal annars frá ferð að Galtarvita, afmælisskákmóti Halldórs Grétars Einarssonar í Bolungarvík, maraþonhlaupi með dóttur sinni og skemmtilegri skáksögu frá Osló. Hann segir jafnframt frá endurgerð Hóls í Bolungarvík og framtíðaráformum sínum um að nýta húsið meðal annars sem skáksetur.
Þá ræða þeir haustmót Taflfélags Reykjavíkur og Skákfélags Akureyrar, komandi deildakeppni, Ólympíuskákmótið í Úsbekistan, heimsmeistaraeinvígi Gukesh og Sindarov og Evrópumót taflfélaga í Svartfjallalandi.
Í lok þáttar ræða þeir 50 ára sögu U2, persónuleg tengsl Magnúsar við hljómsveitina og hið áhrifamikla lag „Exit“ af plötunni The Joshua Tree. Magnús segir frá sögunni og merkingunni á bak við lagið og veltir fyrir sér hvernig það sé að missa stjórn – í tónlistinni, lífinu og við skákborðið.
Gestir í skákþættinum eru Gunnar Freyr Rúnarsson, formaður Víkingaklúbbsins en hann er sagnfræðingur að mennt. Við sláum svo á þráðinn til hans Björns Þorfinnssonar, alþjóðlegs skákmeistara og fv. ristjóra DV.
Gestur í skákþættinum er Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen, formaður KR og framkvæmdastjóri Kjarafélags Viðskiptafræðinga og hagfræðinga.
Lag: Gerum okkar besta með Valgeiri Guðjónssyni og íslenska landsliðinu í handbolta
From the publisher's feed