Frjálsar hendur

Frjálsar hendur

Download on the App Store
  • Favorites

    75

    Followers

  • Typical duration

    50 min

    per episode

  • If it hooks

    54%

    finish an episode

Based on Podcast App listening data

Frjálsar hendur episodes

  • Æska Svetlönu Stalín 3 - Hörmuleg brotthvarf móður hennar
    Eftir fjögurra ára hlé gluggar umsjónarmaður aftur í æskuminningar Svetlönu, einkadóttur Stalíns, einræðisherra Sovétríkjanna. Hér segir einkum frá því þegar Svetlanda missti móður sína aðeins 6 ára gömul en móðir hennar virðist ekki hafa þolað kuldann og hráslagann í hjónabandi hennar og Stalíns.
    51 min
  • Jón Steingrímsson og kolakláfar 1
    Jón Steingrímsson var sonur Steingríms Matthíassonar sem margoft hefur komið við sögu í Frjálsum höndum. Hann reyndist ekki vera síður skemmtilegur minningahöfundur en faðir hans þegar hann gaf út bókin Kolakláfar og kafbátar þar sem hann segir frá sjómennskuferli sínum. Í þessum þætti er lesið úr bók hans.
    50 min
  • Reykjavík og nágrenni um 1800
    Við lok 18. aldar var ástand lands og þjóðar með versta móti en jafnframt var að hefjast margvíslegt umbótastarf. Embættismenn ræddu landsins gagn og nauðsynjar, skáldin kváðu kvæði og athyglin beindist ekki síst að Reykjavík. Var hinn nýi höfuðstaður framtíðin eða einskær "saurvilpa". Lesið er úr bók Þóris Óskarssonar, Svipum brotanna, ævisögu Bjarna Thorarensen.
    51 min
  • Sjókonan Þorbjörg Kolka
    Hjálmar Jónsson í Bólu - öðru nafni skáldið Bólu-Hjálmar - skrifaði ýmsa þjóðsagna- og þjóðlífshætti og hér verður lesinn þáttur hans um Þorbjörgu Kolku, konu sem á að hafa verið uppi á 12. öld, var alin upp hjá huldukonu á Hornströndum en fluttist síðan á Skaga þar sem hún gerðist rómuð sjókona og reri ein á tíæringi.
    51 min
  • Ódysseifskviða 13 - Sírenurnar, Skylla og Kabarydís,
    Hér segir af því Ódysseifur og félagar hans sigla heimleiðis frá eyju Kirku eftir að hafa heimsótt land hinna dauðu og fyrst liggur leið þeirra framhjá sírenunum, dísum sem seyða til sín sæfarendur með fögrum söng, en síðan er siglt um klettasund milli ófreskjanna Skyllu og Charybdisa, og loks komið að landi á eyju þar sem sólarguði Helíos geymir nautgripi sína og sauðfé. Aldrei hafa félagarnir komist í aðrar eins raunir! Þetta er 12. kafli kviðunnar.
    50 min
  • Jón Arason hálshöggvinn - þrisvar
    7. nóvember 1550 voru Jón Arason biskup á Hólum og synir hans Björn og Ari líflátnir í Skálholti. Þrír íslenskir skáldsagnahöfundar hafa lýst aftökunni í verkum sínum, Torfhildur Hólm, Gunnar Gunnarsson og Ólafur Gunnarsson. Umsjónarmaður fjallar stuttlega um aðdraganda aftökunnar og les síðan kaflana þrjá.
    1 hr 1 min
  • Ódysseifskviða 12 - Í landi dauðans
    Hér er lýst för Ódysseifs og félaga til heljar. Hinir daufu draugar í dauðramannalandinu ganga hver af öðrum fyrir Ódysseif og hann spyr spámanninn Tíresías um hvernig framhaldið á heimferð hans til Íþöku muni ganga. Við sögu koma meðal annars Akkiles, Agamamnon og Sísýfos.
    50 min
  • Norman Lewis 6 - Sovéskir stríðsfangar afhentir Stalín
    Breski dátinn Norman Lewis var í setuliði Breta í Napólí 1943-1944. Áður hefur verið lesið úr stórmerkilegum og skemmtilegum endurminningum hans í Frjálsum höndum. Nú segir hann frá því þegar honum var falið að fylgja hópi sovéskra stríðsfanga frá Ítalíu áleiðis heim til Sovétríkjanna en þeir höfðu mátt þola hræðilega vist í þýskum fangabúðum, og er því lýst á mjög hispurslausan hátt. En ekki var víst að betra tæki við þegar til Sovétríkjanna kæmi.
    51 min
  • Árni Thorsteinsson
    Árni Thorsteinsson tónskáld var sonur Árna Thorsteinssonar landfógeta og bróðursonur Steingríms Thorsteinssonar skálds og rektors í Reykjavík og ólst upp í bænum fyri aldamótin 1900. Hann skrifaði seinna æviminningar sínar, sem nefndust Harpa minninganna, og í þættinum er lesið ýmislegt frá æskudögum hans og athyglin beinist ekki síst að tónlistarlífinu.
    51 min

About Frjálsar hendur

From the publisher's feed

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir…

Best of Frjálsar hendur

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Frjálsar hendur

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

ILLVERK Podcast by Inga Kristjáns

ILLVERK Podcast

122 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Draugar fortíðar by Hljóðkirkjan

Draugar fortíðar

72 Listeners

Morðskúrinn by mordskurinn

Morðskúrinn

21 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners