
Sign up to save your podcasts
Or


Haukur Ægir Hauksson hefur átt litríka fortíð og sat inni á Litla-Hrauni fyrir sinn þátt í Sólheimajökulsmálinu, svokallaða. Hann fæddist í Reykjavík og var tekinn af heimili móður sinnar þegar hann var 4 ára gamall. Hann segir okkur frá lífi sínu hingað til, fóstrinu sem hann var sendur í og afplánunni í þætti dagsins.
Bragi Valdimar Skúlason er tónlistarmaður, skáld og íslenskufræðingur. Hann ólst upp fyrir vestan og hefur upplifað eitt og annað merkilegt. Bragi stjórnar þættinum Kappsmál og gaf út ljóðabókina Jóðl og semur einstaklega falleg lög sem maður heyrir mjög gjarnan í útvarpinu.
Gunnar Ingi Valgeirsson er þrítugur maður sem heldur úti þáttunum Lífið á biðlista. Síðan hann varð sjálfur edrú hefur hann helgað tíma sinn því að hjálpa öðrum, sem glíma við fíknivanda, að fá hjálp. Gunnar kom til okkar í Fullorðins og sagði okkur sína sögu.
Kidda Svarfdal og vinkona hennar, María Ómarsdóttir eiga sér sameiginlegt áhugamál sem eru Eyðibýli. Þær hafa farið í tvær ferðir um hluta landsins og kannað yfirgefin hús og fóru nýverið á Vestfirði. Þær opnuðu TikTok sem rauk upp í fjölda fylgjenda og það er augljóst að margir Íslendingar hafa sama áhuga og þær á yfirgefnum stöðum. Í þessum þætti stikla þær á stóru á því sem þær skoðuðu og sýna myndir.
Hilmar Freyr Gunnarsson er einn af þeim sem hefur þurft að yfirgefa heimili sitt í Grindavík vegna jarðhræringanna á svæðinu. Hann hefur barist fyrir Grindvíkinga og mætt í ófá viðtöl til þess að segja frá því sem venjulegar fjölskyldur hafa þurft að ganga í gegnum seinustu misseri. Í þætti dagsins segir hann okkur sína sögu á persónulegri hátt, foreldra- og systkinamissi, uppvextinum og fleira.
Áslaug Kristjáns er kynlífsfræðingur og segist sjálf „vinna við kynlíf". Í þessum þætti segir hún okkur frá því þegar hún ákvað í grunnskóla að hún ætlaði að verða kynlífsfræðingur, hvað hún gerir í starfi sínu og margt fleira.
Í næsta þætti fáum við að kynnast Alrúni örlítið nánar. En svo verður aðalfókusinn í þættinum á baráttuna hennar við að fá hjálp í heilbrigðiskerfinu þegar hún veikist alvarlega í Desember 2021 eftir síendurtekin áföll í gegn um lífið síðan hún var barn. Kafað verður mjög djúpt í um 3 vikna tímabil í kringum jólin & fram í fyrstu-aðra viku Janúars 2022 þar sem hún leitar viðstöðulaust til spítalana & eru Alrún & Kidda með læknaskýrslur Alrúnar sem verður farið yfir samfara frásögn Alrúnar sem er vægast sagt rosaleg. Alrún lýsir hversu brotið & ónýtt kerfið er, hvernig ferli eru innan kerfisins þegar fólk leitar til þess, starfsfólk, ósamhæfi & skipulagsleysi í samskiptum á milli lækna/starfsfólks/deilda, vinnubrögð, virðingarleysi, eftirlitsleysi & hvernig kerfið, bráðamóttökurnar og starfsfólk bregst síendurtekið ásamt því að frásagnir í skýrslum samhæfa ekki sumum hlutum sem gerðust. Vill hún með þessari frásögn varpa meira & skýrara ljósi á aðstæður & hvað fólk þarf að takast á við að fá hjálp í heilbrigðiskerfinu. ATHUGIÐ: ÖLL NÖFN SEM ERU NEFND ERU DULNÖFN OG ERU EKKI RÉTTU NÖFN STARFSFÓLKS.
Einar Örn Reynisson er gestur okkar í þessum þætti. Hann segir okkur frá lífi sínu, edrúmennskunni og hvernig það var að vera sonur eins þekktasta manns okkar tíma, en pabbi hans Reynir Örn Leósson sem var betur þekktur sem Reynir Sterki.
Einar Ágúst Víðisson er kannski þekktastur fyrir að hafa verið í hljómsveitinni Skítamóral um árabil, en líf hans hefur ekki bara verið frægð og glamúr. Í þætti dagsins segir hann okkur frá uppvextinum, tónlistinni, trúnni, áföllum og fleira.
From the publisher's feed