Sign up to save your podcasts
Or

Hinn 28 september 2023 héldum við hjá Digido B2B ráðstefnuna LEADS.
Ráðstefnan er ætluð fyrirtækjum á fyrirtækjamarkaði (B2B) og er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.
Ráðstefnan gekk vonum framar og komu saman yfir 220 manns og um 20 fyrirlesarar frá 7 löndum í hugmyndahúsinu Grósku í Vatnsmýrinni. Mikið var lagt uppúr því að vera með sem mest current, fræðandi og hagnýta dagskrá og hefur endurgjöfin við ráðstefnunni verið stórkostleg.
Á ráðstefnunni voru innlendir sem erlendir fyrirlesarar frá fyrirtækjum á borð við Hubspot, Cognism, B2Linked, Marel, Gangverk, Meniga, 50 skills, Treble, Good Good og mörgum fleiri. Áhersla var lögð á raundæmi og gagnlegar ráðleggingar sem nýtast fyrirtækjum við dagleg störf.
Tilgangur ráðstefnunnar er að hjálpa þessum fyrirtækjum, hvort sem þau eru rótgróin eða í frumkvöðlastarfsemi, að ná meiri árangri í markaðs- og sölustarfi með því að nýta nýjustu aðferðir í stefnumótun, efnisgerð, herferðum, mælingum og nýjustu tækin og tólin.
Það er gríðarlega mikið af spennandi B2B nýsköpunarfyrirtækjum og hugviti að krauma á Íslandi í dag með mikil tækifæri til að vaxa út fyrir landsteinana. Mörg þessara fyrirtækja smíða frábærar vörur en lenda á vegg þegar á að fara í útrás og vaxa erlendis.
Enn fremur er tilgangur ráðstefnunnar að leiða saman fyrirtæki á B2B fyrirtækjamarkaði og veita þeim vettvang til að bera saman bækur og læra af hvoru öðru svo íslenskar vörur og þjónusta megi vaxa, hérlendis sem og um heim allan.
Allar helstu upplýsingar má finna á: www.leads.is
UM HLAÐVARPIÐ
Gagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar.
Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.
Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér:
https://www.linkedin.com/company/digidomarketing
https://www.instagram.com/digidomarketing
https://www.facebook.com/digidomarketing
Verið velkomin í Gagnarök - podcastið þar sem við nördumst yfir markaðsmálum.
Gestur þáttarins er Sigríður Mogensen. Sigríður er sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs hjá Samtökum Iðnaðarins og stjórnarformaður hjá nýsköpunar og frumkvöðla samtökunum Klak. Hún er með BSc í hagfræði frá Háskóla Íslands og MSc í reikningshaldi og fjármálum frá London School of Economics.
Áður starfaði hún við orðsporsáhættustýringu hjá Deutsche Bank í London og sem blaðamaður á Viðskiptablaðinu og fréttamaður á Stöð 2. Þá hefur Sigríður setið í stjórn Nýsköpunarsjóðs, Júpíter rekstrarfélags, verið í áhættunefnd Kviku banka og varaformaður stjórnar Gamma Capital Management.
Samtök Iðnaðarins eru stærstu hagsmunasamtök landsins og standa vörð um 1.700 fyrirtæki í iðnaði svo sem mannvirkjum, hugverkum og meistaravinnu.
Klak er lykilaðili í stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi og leiðandi afl í grasrót frumkvöðlasamfélagsins í gegnum hraðla og keppnir eins og Gulleggið, Hringiða og Startup Supernova.
Við ræddum við Sigríði um
UM HLAÐVARPIÐ
Gagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar.
Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.
Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér:
https://www.linkedin.com/company/digidomarketing
https://www.instagram.com/digidomarketing
https://www.facebook.com/digidomarketing
Í þessum þætti af Gagnarök segja Ómar og Biggi frá B2B Leads ráðstefnunni sem mun fara fram hinn 28 september í hugmyndahúsinu Grósku í Vatnsmýrinni.
Ráðstefnan er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og er ætluð að hjálpa fyrirtækjum sem starfa á fyrirtækjamarkaði, betur þekktur sem B2B markaðurinn (Business to Business) og íslensku hugviti að vaxa út um allan heim. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, mun setja ráðstefnun
Íslandi kraumar ótrúlega mikið af spennandi fyrirtækjum sem búin er að smíða frábæra vöru en vantar aðstoð við sölu- og markaðsstarf.
Markmið ráðstefnunnar er að hjálpa fyrirtækjum, hvort sem þau eru rótgróin eða í nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi, að ná betri árangri í markaðsstarfi með því að nýta nýjustu aðferðir í stefnumótun, efnisgerð, herferðum og mælingum. Jafnframt verða nýjustu tækin og tólin á markaðnum skoðuð í þaula
Tilgangur ráðstefnunnar ekki síður að búa til samfélag fyrir B2B fyrirtæki og veita þeim vettvang til að læra hvort af öðru.
Á ráðstefnunni verða erindi flutt frá 20 fyrirlesurum frá alþjóðlegum B2B fyrirtækjum á borð við Hubspot, Cognism, B2Linked og Q Content, sem og leiðandi fyrirtækjum á Íslandi svo sem, Marel, Gangverk, Good Good, 50 skills og mörgum fleirum.
Áhersla verður lögð á raundæmi og gagnlegar ráðleggingar sem nýtast fyrirtækjum við dagleg störf. Bergur Ebbi rýnir í kristalskúluna og spáir fyrir um framtíð markaðs- og sölumála.
Í þættinum köfum við ofan í:
UM HLAÐVARPIÐ
Gagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar.
Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.
Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér:
https://www.linkedin.com/company/digidomarketing
https://www.instagram.com/digidomarketing
https://www.facebook.com/digidomarketing
Gestur þáttarins að þessu sinni er Anna Signý Guðbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Kolibri.
Kolibri er hugbúnaðar- og hönnunarfyrirtæki sem tekur að sér alls kyns stafræn verkefni, t.a.m. hönnun, vefi, öpp og stafrænar lausnir sérsmíðaðar til að búa til fyrsta flokks notendaupplifun og hjálpa fyrirtækjum á borð við Íslandsbanka, TM, Alcoa og Háskóla Íslands í sinni stafrænu vegferð.
Anna, sem lýsir sjálfri sér sem baráttukonu fyrir jafnrétti og stöðu kvenna í tækni, True Crime heimildarmynda-nöttara og nautnasegg á góðu kaffi, lærði stafræna hönnun og upplýsingafræði í ITU í Kaupmannahöfn.
Hún starfaði hjá danska SaaS fyrirtækinu Siteimprove og Origo á Íslandi áður en hún gekk til liðs við Kolibri, en þar hefur hún starfað síðastliðin fimm ár og tók nýlega við sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Við ræddum við Önnu um:
UM HLAÐVARPIÐ
Gagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar.
Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.
Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér:
https://www.linkedin.com/company/digidomarketing
https://www.instagram.com/digidomarketing
https://www.facebook.com/digidomarketing
Gestur þáttarins er kvikmynda- og auglýsingaleikstjórinn og framleiðandinn Rúnar Ingi Einarsson sem hlotið hefur verðskuldaða athygli fyrir þátttöku sína í stuttmyndinni Fár sem hlaut nýlega sérstaka viðurkenningu á kvikmyndahátíðinni í Cannes.
Rúnar Ingi hefur lengi verið talinn meðal þeirra allra bestu í bransanum og á mörg spennandi verkefni undir beltinu svo sem leikstjórn á auglýsingum fyrir alþjóðlegu fyrirtækin Volvo, Land Rover, Samsung, O2 og Nike svo dæmi séu nefnd.
Hann leikstýrði jafnframt stiklu fyrir sjónvarpsþættina Game of Thrones og hefur ferðast um allar heim fyrir verkefni.
Rúnar Ingi er menntaður með BA í lögfræði en fann snemma að áhuginn og ástríðan lá í kvikmynda- og auglýsingagerð. Hann byrjaði sinn feril sem ungur Steven Spielberg sem fékki vini sína í hverfinu til að leika í stuttmyndum.
Síðan þá hefur hann komið víða við og unnið sem leikstjóri hjá framleiðslufyrirtækjum eins og New Land í Svíþjóð, Markenfilm í Þýskalandi, Caviar í Bandaríkjunum og Pegasus á Íslandi áður en hann stofnaði sjálfur framleiðslufyrirtækið Norður, þar sem hann stýrir skipinu í dag.
Við settumst niður með Rúnari og ræddum:
UM HLAÐVARPIÐ
Gagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar.
Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.
Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér:
https://www.linkedin.com/company/digidomarketing
https://www.instagram.com/digidomarketing
https://www.facebook.com/digidomarketing
Gestir þáttarins koma frá Stafrænt Ísland. Þau eru Andri Heiðar Kristinsson, stafrænn leiðtogi og Vigdís Jóhannsdóttir, markaðsstjóri.
Stafrænt Ísland er sameiginlegt verkefni opinbera stofnana á Íslandi til að bæta stafræna þjónustu og gera líf okkar allra betra.
Andri Heiðar stundaði MBA nám í Stanford háskóla í Kaliforníu með áherslu á frumkvöðlafræði, tækni og leiðtogafærni. Hann hefur komið víða við á sviði nýsköpunar og er einn af stofnendum Icelandic Startups og nýsköpunarkeppninnar Gulleggið, hann starfaði um árabil sem þróunarstjóri hjá samfélagsmiðlafyrirtækinu LinkedIn. Hann stofnaði og rok sprotafyrirtækið Travelade áður en hann gerðist stafrænn leiðtogi í fjármála- og efnahagsráðuneytinu hjá verkefninu Stafrænt Ísland árið 2020.
Vigdís er viðskiptafræðingur að mennt og hefur mikla reynslu af markaðs- kynningarmálum. Hún hóf feril sinn hjá Íslenska útvarpsfélagsinu (sem síðar varð 365) þar sem hún starfaði fyrst sem verkefnastjóri á markaðsdeild sjónvarps, í þáttagerð á framleiðsludeild og kynningarstjóri útvarpssviðs. Árið 2009 lá leiðin á auglýsingastofuna Pipar þar sem hún starfaði sem ráðgjafi og aðstoðarframkvæmdastjóri. Árið 2020 gerist hún markaðsstjóri Stafræns Íslands þar sem hún leiðir innri og ytri markaðs- og kynningarmál, samskipti og fræðslu.
Við ræddum við Andra og Vigdísi um
UM HLAÐVARPIÐ
Gagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar.
Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.
Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér:
https://www.linkedin.com/company/digidomarketing
https://www.instagram.com/digidomarketing
https://www.facebook.com/digidomarketing
Gestir þáttarins eru Björn Þór Ingason, markaðsstjóri hjá Íslenskur Toppfótbolti og Helgi Pjetur, einn stofnenda hjá Púls Media.
Þátturinn fjallar um hvernig snjallbirtingar eru að breyta birtingamarkaðnum með því að hjálpa markaðsfólki og markaðsstofum að miðstýra auglýsingagerð og birtingum í gegnum eina lausn. Við heyrum einstaklega nytsamlegt dæmi um hvernig Toppfótbolti hefur sparað milljónir króna og óteljandi klukkustundir með því að nýta lausn Púls Media.
Íslenskur Toppfótbolti eru hagsmunasamtök fyrir félög í efstu deild karla og kvenna í Knattspyrnu og eru með það markmið að stuðla að vexti og framgangi íslenskrar knattspyrnu.
Fyrrum fótboltahetjan og nú markaðssjéní Björn Þór er með gráður í markaðsfræði frá HR og CBS en hann byrjaði sinn feril hjá Hvíta Húsinu, Öskju, Kunde & Co, Verna áður en hann tók við sem markaðsstjóri Toppfótbolta árið 2021.
Púls Media er auglýsingakerfi sem gerir fyrirtækjum kleift að framleiða, dreifa og birta auglýsingar á vefmiðlum, samfélagsmiðlum og umhverfismiðlum með nýjum og spennandi leiðum.
Helgi Pjetur er legend í tækniheiminum sem byrjaði sinn feril hjá Nova áður en hann stofnaði, ásamt samstarfsfélögum sínum, fyrirtæki eins og appþróunarfyrirtækið Stokk, atvinnuleitar miðilinn Alfreð, fjármálaappið Aur og nú nýlegast Púls Media sem hann co-stofnaði árið 2021.
Við ræddum við Björn og Helga um
UM HLAÐVARPIÐ
Gagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar.
Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.
Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér:
https://www.linkedin.com/company/digidomarketing
https://www.instagram.com/digidomarketing
https://www.facebook.com/digidomarketing
Í þessum þætti af Gagnarök dusta Ómar og Ebbi rykið af skólabókunum í 101 markaðsfræði og ræða mikilvægi þess að vera með vel skilgreindan markhóp.
Hvort sem fyrirtæki eru í B2C eða B2B er það staðreynd að þau fyrirtæki sem fara í vel ígundaða rannsóknarvinnu og skilgreina markhópinn sinn eins vel og hægt er ná meiri árangri. Það gerir alla vinnu við að smíða skilaboð, efnisgerð og herferðir margfalt skilvirkari og árangursríkari. Svo er það bara skemmtilegra.
Mörg fyrirtæki skilgreina aldrei markhópinn sinn eða fara ekki lengra en "Konur, aldur 20 - 50 ára". Það er ágætis byrjun, en það er hægt að fara svo miklu dýpra og fókusera frekar á "áhuga" og "áhyggjur" / "pain points".
Þeir félagar ræða sín á milli af hverju það er svona mikilvægt að skilgreina markhópinn sinn ítarlega og hvernig er best að gera það.
Í þættinum köfum við ofan í:
UM HLAÐVARPIÐ
Gagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar.
Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.
Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér:
https://www.linkedin.com/company/digidomarketing
https://www.instagram.com/digidomarketing
https://www.facebook.com/digidomarketing
Gestir þáttarins eru Ása Rún Björnsdóttir, rekstrarstjóri og Kristján Aðalsteinsson, Director of Client Relations hjá stafrænu vöruhönnunar stofunni Gangverk.
Þátturinn fjallar ítarlega um kúlturinn, teymisstrúkturinn og aðferðafræðina sem Gangverk beitir til að búa til jákvætt, skilvirkt og afkastamikið umhverfi þar sem starfsmenn fá að gera það sem þau gera best.
Gangverk er íslenskt fyrirtæki sem ef til vill margir hafa ekki heyrt um en hefur verið að gera virkilega góða hluti við ráðgjöf og innleiðingu á stafrænni umbreytingu fyrir fyrirtæki um allan heim. Fyrirtækið hlaut nýverið útflutningsverðlaun forseta Íslands.
Ása sem heldur utan um daglegan rekstur hjá Gangverk starfaði áður hjá Símanum sem forstöðumaður Greiningardeildar, Hagdeildar og Vörustýringar.
Kristján, sem starfar sem brú á milli viðskiptavina og teyma innan Gangverks, hóf sinn feril sem handboltaþjálfari og starfaði svo í ráðgjöf hjá N1 og viðskiptastjóri og hluthafi hjá auglýsingastofunni Hvíta Húsinu.Þau gengu bæði til liðs við Gangverk árið 2022.
Við ræddum við Ásu og Kristján um
UM HLAÐVARPIÐ
Gagnarök er brakandi ferskt hlaðvarp á vegum gagnadrifnu markaðsstofunnar Digido. Í hlaðvarpinu skiptast fjölskyldumeðlimir Digido á að afhjúpa sinn innri nörd í lifandi umræðum um markaðsmál framtíðar, fortíðar og líðandi stundar.
Hlustendur hlýða á umræður um þau tól, tæki og strategíur sem stuðla að árangursríkum markaðsaðgerðum og eins og góðu hlaðvarpi sæmir mun skrjáfa í froðu-snakkpokanum endrum og eins.
Myndbrot úr þáttunum finnur þú hér:
https://www.linkedin.com/company/digidomarketing
https://www.instagram.com/digidomarketing
https://www.facebook.com/digidomarketing
Í þessum þætti af Gagnarök ræða Ómar og Ebbi svokallaðar ABM (Account Based Marketing) herferðir sem eru þekktar fyrir vera einstaklega árangursíkar.
Fyrirtæki hafa margar leiðir til að búa til eftirspurn eftir vöru eða þjónustu. Ein slík leið eru svokallaðar ABM herferðir. Það sem einkennir ABM herferðir er hvernig markaðs- og söluteymi vinna saman að rannsóknarvinnu til að senda persónuleg skilaboð á mörgum miðlum samtímis til að umlykja markhópinn sinn og breyta í viðskiptavin.
Þeir félagar ræða sín á milli hvernig er best að nálgast slíkar herferðir út frá aðferðafræði, efnissköpun, notendaupplifun og tæknilegum atriðum til að ná sem bestum árangri.