Árið hófst á vonbrigðum þegar árleg verðbólga skaust úr 4,5% í 5,2% á einum mánuði. En hvað liggur að baki? Þáttastjórnendur Sirkabát kafa ofan í vísitölu neysluverðs, skoða flokkana sem ýttu henni upp og reikna út hvað hefði gerst ef lagabreytingar á vörugjöldum ökutækja hefðu ekki tekið gildi um áramótin.
Niðurstaðan: Gagnrýnin á gjaldahækkunina á við, en svartsýnisspáin kannski ekki. Lestu lengri greiningu Sirkabát á verðbólgutölum á Gímaldinu.
Gímaldið er nýr fjölmiðill í áskrift. Hver einasta áskrift skiptir okkur máli og hjálpar okkur að halda úti vandaðri umfjöllun.
Sástu tölu í fréttum sem þú vilt skilja betur? Sendu okkur línu á [email protected]