Orðin sem við skiljum ekki

Goðafræði fyrir samtímann


Listen Later

Jafnvel þó svo að vísindin hafi tekið við af trúarbrögðum sem ráðandi afl í vestrænni menningu þá er grundvöllurinn í mannlegri tilveru ennþá markaður af goðsögulegri hugsun. Hreyfingar himintunglanna, árstíðirnar, hringrás vatns, líf og dauði; allt eru þetta náttúrulegir ferlar sem er hægt að útskýra með vísindalegum hugtökum. En það hvernig við hugsum um þessi ferli og hvernig tungumálið lýsir þeim endurspeglar miklu fremur ævafornt, huglægt sjónarhorn mannskepnunnar heldur en hlutlægan og vísindalegan sannleika.
Í þriðja þætti seríunnar Orðin sem við skiljum ekki, sem byggð er á bók Andra Snæs Magnasonar Um tímann og vatnið, fjallar Þorvaldur S. Helgason um muninn á goðsögulegri og vísindalegri hugsun og skoðar hvernig þessi tvö þekkingartól geta nýst á ólíkan hátt til að takast á við stærstu áskorun samtímans, loftslagsbreytingar. Viðmælendur þáttarins eru Finnur Dellsén, dósent í heimspeki við Háskóla Íslands, og Gísli Sigurðsson, rannsóknarprófessor við Árnastofnun.
Umsjón: Þorvaldur S. Helgason.
Tónlist: Högni Egilsson.
Upplestur: Anna Marsibil Clausen.
Sérstakar þakkir: Andri Snær Magnason.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Orðin sem við skiljum ekkiBy RÚV