Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Hlustendur læðast í kringum menn og málefni í leit að hugljómunum, nýjum sjónarhornum og sögum sem skipta máli.Umsjónarmaður er Anna Marsibil Clausen.... more
FAQs about Grár köttur:How many episodes does Grár köttur have?The podcast currently has 17 episodes available.
March 22, 2019Með óvæntum afleiðingumÍ þætti dagsins heyrum við sögur af aukaverkunum - óvæntum afleyðingum lyfja, laga, og lagasmíða fyrir unga konu, íslenska poppstjörnu og síðast en ekki síst: seli. Við byrjum (eins og svo margar unglingsstúlkur) á pillunni en leið okkar liggur þó einnig í jarðarför og í Húsdýragarðinn....more50minPlay
March 15, 2019Stærsta ástarsorginÍ dag fjallar Grár köttur um börn, eða nánar tiltekið hvernig þau verða til. Það ferli á að vera skemmtilegt, allavega svona í upphafi, en þó við eyðum mikilli orku í að koma í veg fyrir barneignir snemma á lífsleiðinni reynist það stundum þrautin þyngri að búa til börn þegar upp er staðið. Í þættinum í dag heyrum við þrjár sögur af ófrjósemisvanda, um drauma sem virðast aldrei ætla að rætast og líkama sem bregðast....more51minPlay
March 08, 2019Íslenskir umhverfisskæruliðarGrár köttur læðist um íslenska náttúru og segir sögur af þremur íslenskum umhverfisskæruliðum. Kona fer í stríð á sauðskinnsskóm, Laxdælingur fremur hryðjuverk og ruslahaugur kippir stjörnusérfræðingi niður á jörðina....more50minPlay
March 01, 2019Þegar bjórinn var bannaðurEftir 76 ár af smygli og heimabruggi var bjórbanninu á Íslandi loks aflétt þann 1. mars árið 1989. Leiðin frá bannárunum til bjórsins var nokkuð skrautleg en hana fetar Grár köttur í þætti dagsins með aðstoð Stefáns Pálssonar sagnfræðings, Davíðs "sem keypti ölið" Scheving, frumkvöðlanna á bakvið Gauk á stöng og bjórlíkið sem og Steingríms J. Sigfússonar Alþingismanns sem mælti gegn bjórfrumvarpinu á sínum tíma....more56minPlay
February 22, 2019Á milli þiljaEins manns rusl er annars fjárssjóður - og öfugt. Í þættinum í dag heyrum við þrjár sögur af hlutum sem fundust undir gólffjölum, uppi á háalofti og milli þilja, hlutum sem bæta kannski ekki miklu í baukinn en eru, á mjög ólíkan hátt, kannski gulls ígildi....more49minPlay
February 15, 2019SkopmyndirÞó við séum misdugleg við að básúna þeim höfum við öll skoðanir. Sumir kjósa að láta móðan mása á samfélagsmiðlum, aðrir hringja í útvarpsstöðvar eða skrifa í blöðin en örfáir Íslendingar hafa það beinlínis að atvinnu að láta skoðanir sínar í ljós með myndrænum hætti. Þessa vikuna fjallar Grár köttur um pólitískar skopmyndateikningar....more54minPlay
February 08, 2019„Heima er best"„Heima er best" segir útsaumurinn og ekki lýgur hann. Fyrirbærinu „heima" fylgja hinsvegar ótal tilfinningar og að „eiga heima" einhversstaðar snýst ekki bara um búsetu heldur það að tilheyra. En hvað ef fólk gerir ósjálfrátt ráð fyrir því að þú sért útlendingur? Grár köttur tekur fyrir hugtakið „heima" útfrá sögu leikkonunnar Maríu Thelmu Smáradóttur.Umsjón: Anna Marsibil Clausen....more45minPlay
FAQs about Grár köttur:How many episodes does Grár köttur have?The podcast currently has 17 episodes available.