Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
FAQs about Grænvarpið:How many episodes does Grænvarpið have?The podcast currently has 43 episodes available.
March 20, 2026Að borða fílHvernig á að flytja 28 vindmyllur í 400 hlutum eftir íslensku vegakerfi án þess að trufla vegfarendur of mikið? Sigurgeir og Gunnar Aron segja okkur allt um vindmylluflutningana frá Þorlákshöfn í Vaðölduver sem byrja núna í vor....more28minPlay
February 27, 2026Í nánum tengslum við nærsamfélagiðRætt er um mikilvægi opinna og traustra samskipta við nærsamfélagið í kringum aflstöðvar Landsvirkjunar. Hildur Vésteinsdóttir, verkefnisstjóri á deild nærsamfélags og náttúru, fer yfir hvernig reglulegt samtal, fjölbreyttar samskiptaleiðir og gagnsæi stuðla að trausti og jákvæðum tengslum við íbúa og aðra hagsmunaaðila.Þátturinn á YouTube...more10minPlay
January 28, 2026Erlend verkefni LandsvirkjunarSérþekking Landsvirkjunar í vatnsafli og jarðvarma er eftirsótt víða um heim. Kristján Guðmundsson, forstöðumaður erlendra verkefna, segir okkur frá verkefnum Landsvirkjunar á erlendri grund. Það er nóg af tækifærum en stefna fyrirtækisins er að halda sig við verkefni á norðurslóðum, einkum í Kanada og á Grænlandi. ...more24minPlay
December 23, 2025Nærsamfélag og vöktun á AusturlandiVel hefur verið fylgst með áhrifum Kárahnjúkavirkjunar og Fljótsdalsstöðvar á samfélag og náttúru á Austurlandi í þau tæplega 20 ár sem liðin eru síðan stöðin var gangsett. Árni Óðinsson, verkefnisstjóri á deild nærsamfélags og náttúru, hefur verið potturinn og pannan í þeirri vöktun og samskiptum við samfélagið á svæðinu síðustu 17 ár.Þátturinn á YouTube...more20minPlay
November 27, 2025Lengi má gott bætaHildigunnur Jónsdóttir er forstöðumaður endurbótadeildar, sem hefur viðamikil verkefni með höndum innan Landsvirkjunar og sér til þess að aflstöðvarnar séu í toppstandi, auk þess að bregðast við ófyrirsjáanlegum bilunum og atburðum í rekstri. Endurbætur eru mikilvægur þáttur í því að nýta auðlindirnar sem best og tryggja að rekstur orkufyrirtækis þjóðarinnar sé eins áreiðanlegur og hægt er.Þátturinn á YouTube ...more18minPlay
October 31, 2025Vatnsbúskapurinn skiptir sköpumStaðan í lónunum okkar er heldur betur mikilvæg fyrir Landsvirkjun og þjóðina alla. Ívar Baldvinsson, forstöðumaður vinnsluáætlana, fer yfir allt sem lýtur að vatnsbúskapnum, hverju við getum stjórnað og hvað er alveg undir náttúruöflunum komið.Þátturinn á YouTube...more22minPlay
October 06, 2025Endurnýjanleg orkuvinnsla og umhverfismálHvernig tengist orkuvinnsla Landsvirkjunar markmiðum heims um að sporna við hlýnun jarðar og hvernig tengjast þau markmið öðrum umhverfismálum? Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, forstöðumaður loftslags og sjálfbærni, spjallaði við Ívar Pál um umhverfis- og loftslagsmál.Þátturinn á YouTube ...more13minPlay
August 29, 2025Hvernig er að vera ung kona í Landsvirkjun?Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun – fyrir ungar konur? Á hverju vori kemur stór hópur háskólanema til sumarstarfa hjá Landsvirkjun. Sumir ílengjast svo í alls konar verkefnum sem tengjast náminu. Ívar Páll ræðir hér annars vegar við Öldu Ægisdóttur, sem sér meðal annars um gestastofur Landsvirkjunar og Bryndísi Brynjúlfsdóttur, sem starfaði framan af fyrir samskiptadeildina en er nú útskrifuð úr verkfræði og komin á bólakaf í verkefnastjórnun fyrir Vaðölduver. Þátturinn á YouTube ...more19minPlay
June 30, 2025Orkan í Ástralíu - Einar ErlingssonEinar Erlingsson, verkefnastjóri í erlendum verkefnum, segir frá lífi sínu og starfi í Ástralíu, en hann dvaldi þar um tæplega sex ára skeið sem ráðgjafi við stærsta vatnsaflsverkefni í sögu landsins, í Snowy-fjöllum.Þátturinn á YouTube...more40minPlay
June 02, 2025Orkan í orkuskiptunum - Sigríður Mogensen og Haukur Ásberg HilmarssonÞóra ræðir við Sigríði Mogensen hjá Samtökum iðnaðarins og Hauk Ásberg Hilmarsson hjá Landsvirkjun um vefinn orkuskipti.is, sem fjallar um það hvernig Íslendingar geta skipt út milljón tonnum af olíu á ári fyrir loftslagsmarkmið, orkuöryggi, hreinna loft og orkusjálfstæði.Þátturinn á YouTube...more25minPlay
FAQs about Grænvarpið:How many episodes does Grænvarpið have?The podcast currently has 43 episodes available.