Gullkastið

Gullkastið – Eru batamerki á Liverpool liðinu? UPPFÆRT: Robbo að kveðja?


Listen Later

Uppfært 11:30: Paul Joyce, sem er alla jafnan sá áreiðanlegasti af Liverpool pennunum, greindi frá því rétt í þessu að Spurs séu að reyna að fá Andy Robertson til sín. Maður hefur að vissu leyti skilning á að Robbo vilji fleiri mínútur á HM ári, en ég held að @PaulSenior1 í skjáskotinu fyrir neðan tali fyrir okkur flest…

 

 

Flottur sigur í Marseille í gærkvöldi og nokkuð góð staða í Meistaradeildinni fyrir lokaumferðina. Hinsvegar afleit úrslit í annars frábærri Kop.is ferð á Anfield þar sem Burnley náði í verulega pirrandi stig. Stigasöfnun í deildinni undanfarið klárlega töluvert áhyggjuefni en viss batamerki á liðinu inn á milli. Leikjaprógrammið framundan er töluvert þyngra á pappír, hentar það Liverpool?

Bournemouth á útivellli er næsta verkefni seinnipartinn á laugardaginn.

Stjórnandi: Einar Matthías

Viðmælendur: SSteinn og Maggi

Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf

MP3: Þáttur 553

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

GullkastiðBy Kop.is