Handboltinn okkar

Handboltinn okkar - FH stúlkur mættu til leiks - Naglbítur fyrir norðan -Flottir dómarar í Eyjum


Listen Later

Í þessum þætti fóru þeir Jói Lange og Gestur yfir 11.umferðina í Olísdeild kvenna. Þeir lýstu yfir mikilli ánægju með baráttu andann sem FH stúlkur sýndu í leiknum gegn HK og hefðu viljað sá þetta hjá þeim mikið fyrr og eins hrósuðu þeir Ásgeiri Jónssyni formanni FH fyrir frábæra lýsingu á FHTV. Haukarnir sýndu enn einu sinni hversu miklar framfarir hafa orðið hjá þeim undir stjórn Gunnars Gunnarssonar en þær voru hársbreidd frá því að taka bæði stigin sem í boði voru fyrir norðan. Þá vildu þeir sérstaklega taka það fram hvað dómararnir í leik ÍBV og Fram, þeir Árni Snær Magnússon og Þorvarð Bjarmi Harðarson voru góðir í þeim leik og gaman að sjá hversu miklum framförum þeir hafa tekið í vetur.

Þá völdu þeir þá leikmenn sem koma til greina sem BK leikmaður 11.umferðar en það eru þær Sara Odden (Haukum), Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir (ÍBV), Alexandra Von Gunnarsdóttir (HK) og Lovísa Thompson (Val)

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Handboltinn okkarBy Handboltinn okkar