Handboltinn okkar

Handboltinn okkar

By Handboltinn okkarSports
Download on the App Store

Handboltinn okkar episodes

  • Sameinaðir á ný - Nýr leikmaður á Ísafjörð - Staðan handboltans
    Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust niður við hljóðpípuna á nýjan leik og forum um víðan völl í umræðu sinni um handboltann frá öllum hliðum.
    Þeir hófu yfirferð sína á því að líta á stöðu mála í Olísdeild karla þar sem þeir voru sammála um að Afturelding væri að koma þeim einna mest á óvart í vetur. Þá upplýstu þeir um að Harðverjar væru búnir að semja við rússneska skyttu Alexander Tatarintsev sem hefur meðal annars leikið með spænska liðinu Ademar Leon.
    Í framhaldinu ræddu þeir mikið um stöðu handboltans í dag með hliðsjón af deildarfyrirkomulagi og þeir telja að úrbóta sé þörf og víða sé pottur brotinn.
    1 hr 23 min
  • Til hamingju Fram
    þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í dag.
    Í þættinum fjölluðu þeir um leiki 3 og 4  í úrslitum Olísdeildar kvenna. Í leik 3 voru Framkonur ákveðnari og fóru með sigur af hólmi og munaði mest um að Hafdís Renötudóttir markvörður Fram átti flottan leik og var með um 40% markvörslu.  Leikur 4 var dálítið kaflaskiptur en Fram var þó ávallt með frumkvæðið, síðustu tíu mínútur leiksins voru þó æsispennandi en safamýrarliðið hafði þó betur að lokum og unnu sinn 23. Íslandsmeistaratitil.
    Strákarnir hrósuðu Karen Kútsdóttur fyrir frábæra frammistöðu í úrslitaeinvíginu og hún sýndi öllum að hún er besti leikstjórnandi landsins og gerir heldur betur tilkall til þess að vera leikstjórnandi númer 1 í A-landsliðið kvenna.
    Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar óskar Framkonum til hamingju með titilinn.
    34 min
  • Til hamingju Valsmenn - Þarf handboltinn að finna sér nýtt heimili?
    þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í dag.
    Í þættinum fjölluðu þeir um leikir 3 og 4  í úrslitum Olísdeildar karla. Í leik 3 voru það eyjamenn sem köstuðu frá sér unnum leik á síðustu tíu mínútum leiksins og undir lok hans átti sér stað umdeilt atvik þar sem að ruðningur var dæmdur á eyjamenn. Strákarnir voru ekki sammála um réttmæti dómsins líkt og aðrir landsmenn. Spennan var svo í algleymingi í leik 4 þar sem að Valsmenn höfðu þó frumkvæðið og fóru að lokum með sigur og tryggðu sér þar með Íslandsmeistaratitilinn.
    Strákarnir hrósuðu Snorra Steini þjálfara Vals sérstaklega en hann hefur greinilega farið í einhvers konar naflaskoðun og er orðinn miklu yfirvegaðari á bekknum og hættur að pirra sig á hlutum sem hann getur ekki stjórnað líkt og dómgæslu.  
    Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar óskar Valsmönnum til hamingju með titilinn.
    Að lokum fóru þeir félagar yfir víðan völl og t.d. ræddu þeir það hvort að handboltinn þyrfti að finna sér annan samstarfsaðila þegar kemur að útsendingum frá deildunum því núverandi rétthafi væri ekki að sinna handboltanum eins og þeir ættu að gera að mati þáttastjórnenda.
    49 min
  • Allt í járnum í úrslitaeinvígum karla og kvenna - Frábær dómgæsla í Eyjum - Sviptingar á þjálfaramarkaðnum
    þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í dag.
    Í þættinum fjölluðu þeir um fyrstu 2 leikina í úrslitum Olísdeildar karla þar sem að var um að ræða heldur betur ólíka leiki frá öllum hliðum séð. Í fyrsta leiknum voru eyjamenn bara hreinlega líkt og áhorfendur í fyrri hálfleik en náðu þó að eins að rétta hlut sinn í seinni hálfleik. Dómgæslan var heldur ekki burðug í þeim leik.  Allt annað var uppá teningunum í leik 2 þar sem að ÍBV náði að svara fyrir sig en þar var Björn Viðar markvörður eyjamanna heldur betur í stuði og hélt sínum mönnum inní leiknum. Þeir félagar hrósuðu þó dómurunum sérstaklega en að þeirra mati dæmdu þeir Anton og Jónas leikinn óaðfinnanlega. 
     Drenginrnir fóru einnig yfir einvígi Fram og Vals í úrslitum Olísdeildar kvenna þar sem 2 leikir eru einnig búnir. Þeir voru gríðarlega ánægðir með spennuna sem er í þessu einvígi og spá því að þetta muni fara í oddaleik en þeir treystu sér þó ekki til þess að spá til um hvaða lið myndi standa uppi sem Íslandsmeistari.
      Að lokum fóru þeir yfir nýjustu fréttir og slúður í handboltaheiminum en það er allt að fara í gang á félagaskiptamarkaðunum þessa daganna.
    49 min
  • Selfyssingum sópað út á meðan Haukar halda lífi - Allt jafnt hjá KA/Þór og Val en Fram einu skrefi frá úrslitum í Olisdeild kvenna
    þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í dag.
    Í þættinum fjölluðu þeir um leiki 3 í undanúrslitum karla þar sem að Haukum tókst að halda lífi í einvíginu gegn ÍBV en Selfoss féll úr leik eftir að hafa tapað einvíginu gegn Val 3-0.
     Þá fóru þeir yfir leiki 2 í undanúrslitum kvenna þar sem að KA/Þór jafnaði einvígið gegn Val með sigri á heimavelli sínum fyrir norðan. Fram er hins vegar komið í 2-0 gegn ÍBV.
      Að lokum fóru þeir yfir nýjustu fréttir og slúður í handboltaheiminum en það er allt að fara í gang á félagaskiptamarkaðunum þessa daganna.
    47 min
  • Leikir 2 í undanúrslitum karla - Haukar og Selfoss komnir með bakið upp við vegg - rangfærslur leiðréttar
    Í þætti kvöldsins fjölluðu við um leiki 2 í undanúrslitum karla þar en eftir þá má með sanni segja að Haukar og Selfoss séu komnir með bakið upp við vegg þar sem liðin eru komin 2-0 undir í einvíginu. Þá fórum við aðeins yfir leik Fjölnis og ÍR í umspili um laust sæti í Olísdeild karla á næstu leiktíð.  Að lokum leiðréttum við rangfærslur sem við fórum með í síðasta þætti.
    52 min
  • Undanúrslit í Olís karla - Rýnt í undanúrslit í Olís kvenna -Vilja stefnu frá HSÍ í útbreiðislumálum.
    Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar gáfu út sinn fertugasta þátt vetrarins í dag.
    Í þætti dagsins fóru þeir yfir fyrstu leikina í undanúrslitunum í Olísdeild karla þar sem að þeim þykir vera einhvert andleysi yfir liði Hauka sem þeim líst ekki næginlega vel á.  Þá voru þeir sammála um að Valur væri einfaldlega of stór biti fyrir Selfoss.
    Þá kíktu þeir á úrslitakeppnina í Olísdeild kvenna þar sem þeir rýndu í undanúrslitin. Gestur spáði því að KA/Þór og ÍBV myndu leika til úrslita í vor og þá hófust miklar pælingar með það hvenær það hefði gerst síðast að hvorki Fram né Valur væri í úrslitarimmunni. Þáttastjórnendum sagði sá hugur að það væri líklega tímabilið 2007/2008 sem það hefði gerst en  þó sagt án ábyrgðar.
    Undir lok þáttar fóru þeir svo aðeins yfir ársþing HSÍ þar sem mesti tíminn fór í að ræða útbreiðslustarf og þeir félagar vilja sjá skýrari stefnu hjá HSÍ í þeim málum að breiða út íþróttina í ný bæjarfélög.
    1 hr 9 min
  • Allt um 8-liða úrslitin í Olísdeild karla - Stjarnan vonbrigði vetrarins - Spáð í undanúrslitin
    Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klakastúdíóið sitt í dag og tóku upp sinn þrítugasta og níunda þátt á þessu tímabili. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Gestur Guðrúnarson og Arnar Gunnarsson
    Í þætti dagsins fóru þeir yfir 8-liða úrslitin í Olísdeild karla þar sem þeir voru heldur betur ekki ánægðir með frammistöðu Stjörnumanna og fannst þeim hún endurspegla leik liðsins í vetur þar sem þeir hafa hreinlega ekki verið að standa undir væntingum að þeirra mati.
    Þá völdu þeir BK leikmenn einvíganna og munu svo setja af stað kosningu á samfélagsmiðlum sínum um það hvaða leikmaður er BK leikmaður 8-liða úrslitanna.  Þeir leikmenn sem koma til greina eru Ólafur Gústafsson KA, Arnór Viðarsson ÍBV, Magnús Óli Magnússon Val og Hergeir Grímsson Selfossi.
    Þeir félagar spáðu svo í spilin fyrir undanúrslitin þar sem að spá því að Valur og ÍBV sigra einvígin og leika til úrslita.
    1 hr 16 min
  • Uppgjör í Olísdeild og Grill66 deild karla - Til hamingju Hörður og Valur - Spáð í úrslitakeppnina
    Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klakastúdíóið sitt í dag eftir langa fjarveru og tóku upp sinn þrítugasta og áttunda þátt á þessu tímabili. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Gestur Guðrúnarson og Arnar Gunnarsson
    Í þætti dagsins fóru þeir yfir lokastöðuna í Olísdeild karla þar sem þeir fóru yfir hvernig hún var á móti spá þeirra félaga í haust. Þá spjölluðu þeir um það sem þeim fannst koma á óvart í vetur bæði jákvætt og neikvætt.  Þá spáðu þeir aðeins í úrslitakeppnina sem hefst eftir viku og þar voru þeir félagar sammála um að það yrði hörkuskemmtun.
    Þá fóru þeir einnig yfir málin í Grill66 deild karla þar sem að Hörður frá Ísafirði urðu deildarmeistarar. Þar fóru þeir yfir umspilið sem er framundan um laust sæti í Olísdeild karla á næstu leiktíð og þar voru þeir ekki alveg sammála um hvaða lið það yrði sem myndi hreppa það sæti.
    Að lokum fóru þeir yfir landsleikina sem eru framundan gegn Austurríki og þar voru þeir sammála um að íslenska liðið myndi komast áfram úr því umspili.
    1 hr 8 min
  • Allt um Coca-Cola bikarkeppni karla og kvenna - Rýnt í úrslitaleikina - Aðeins meira um Selfoss og kvennalandsliðið
    Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klakastúdíóið sitt í dag og tóku upp sinn þrítugasta og sjöunda þátt á þessu tímabili. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange og Gestur Guðrúnarson.
    Í þætti dagsins fóru þeir yfir undanúrslitaleikina í Coca-Cola bikar karla og kvenna. Þá rýndu þeir í úrslitaleikina sem fara fram síðar í dag. Þeir félagar eru sammála um að það verði hörku viðureign í kvennaflokki þegar að Valur og Fram mætast þar sem að þeir telja að úrslitin munu ráðast á loka andartökum leiksins.
    Þeir voru ekki eins samstíga um karla leikinn þar sem að Valur og KA eigast við, Jói telur að Valsmenn eigi eftir að sigra þennan leik auðveldlega en Gestur var hins vegar ekki sammála því og telur að þetta verði hörkuleikur.
    Að lokum tóku þeir félagar smá spjall um málefni Selfoss þar sem að þar hefur ýmislegt komið í ljós eftir að síðasta þætti lauk og þá fóru þeir aðeins yfir málefni A-landsliðs kvenna.
    52 min

About Handboltinn okkar

From the publisher's feed

Þáttur þar sem er fjallað um handbolta frá öllum hliðum bæði hérlendis og erlendis