Gleymdar perlur áttunnar

Hannes Friðbjarnarson


Listen Later

Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson.
Það er hinn lauflétti trommuleikari úr Kópavoginum, Hannes Friðbjarnarson sem er gestur Níunnar í þetta skiptið.
Hannes velur nokkrar gleymdar perlur frá þessum skemmtilega áratug og einhverjar koma mögulega á óvart.
Hannes var tónlistarlega alin upp af þremur eldri systrum þar sem Duran og vinir þeirra koma mikið við sögu en hans rebel var hljómsveit í leðurpjötlum, háum stígvélum og mesta "make up" tónlistarsögunar.
hann kemur inn á hvernig einhverjar sveitir kynntu inn svitan og drulluga hárið í rokkið, þegar rokksveinar heimsins hættu að líta út eins og leikarar í Dynasty.
Við heyrum líka sögur af meikdraumum Hannesar og hans hljómsveitar, Dead Sea Apple, í New York og stuttu en eld heitu sambandi hans við Liv Tyler.
Þá fáum við að heyra hvernig hljómsveitin hans kom að stærstu tónlistarhátíð Íslandssögunnar, saga sem fæstir hafa heyrt.
Þá ræða gestur og umsjónarmaður hvernig það sé að vera eldri maður í nútíma samfélagi, á dögum samfélagsmiðla og tónlistarveitna.
Góð stund fyrir bæði eyru
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Gleymdar perlur áttunnarBy RÚV