Handboltinn okkar

Háspenna í eyjum -Mosfellingar bensínlausir


Listen Later

Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar var á ferðinni í kvöld þar sem að umsjónarmenn þáttarins fjölluðu um leikina 2 í 8-liða úrslitum Olísdeildar karla sem fram fóru í kvöld.   Það var boðið uppá hörkuleik í eyjum og voru þeir ánægðir með baráttuna hjá báðum liðum og vildu hrósa dómurum leiksins þeim Antoni og Jónasi sérstaklega fyrir að halda vel utan um leikinn.

Leikur Aftureldingar og Hauka var hins vegar aldrei spennandi og lið Hauka sýndi að enn einu sinni að þeir eru besta lið landsins og þeir félagar sjá hreinlega ekki hvaða lið eigi roð þá eins og staðan er í dag.

Í lok þáttar lýstu þeir félagar yfir vonbrigðum með Stöð2Sport með metnaðarleysi í útsendingum sínum en stöðin er aðeins með eina myndavél á leikjunum í kvöld og auk þess er lýsandinn að lýsa úr herbergi á suðurlandsbrautinni. Þeir félagar kalla eftir því að rétthafi deildanna geri betur.

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Handboltinn okkarBy Handboltinn okkar