Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
FAQs about Hefnendurnir Gamli:How many episodes does Hefnendurnir Gamli have?The podcast currently has 211 episodes available.
September 14, 2015Hefnendurnir 81 - Betra Er Að Gefa En Adam SandlerHetjurnar okkar knáu ræða glataða gjafmildi, aðdáunarverða ómennsku og myndamyndasögur myrkrahesta áður en þeir dýfa sér á kaf í síðustu söludaga og hina eilífu spurningu; „af hverju Adam Sandler?“...more1h 18minPlay
September 07, 2015Hefnendurnir 80 - Dýrin Í LatabæHinn Hugljúfi og Sá Ævislegi setjast niður í alrýmið og gubba úr sér vangaveltum um ofhlæði legósins, fráfall drumbkvendisins og fræðinga markaðsins. En setja svo á sig gáfuhjálminn er þeir gefa forsjárhyggjufasistum og anarkískum terroristum í Latabæ góðan gaum....more1h 35minPlay
August 31, 2015Hefnendurnir 79 - Tvö Typpi Og Milljón MömmurHullsubrauðið og Ævahnúturinn smjatta yfir smávægilegum forgangsatriðum á borð við heilsuvandamál Don Kíkóta, svarta spegilmynd Camerons og Íslenska skrímslamenn í erlendum stiklum en það er aðeinsforrétturinn því í aðalrétt er NOOOOOOOOOOOO!!!!!!...more1h 34minPlay
August 24, 2015Hefnendurnir 78 - Furryinn í hænsnakofanumHulkleikur er á myndasöguráðstefnu í Noregi þannig að Ævorman sló á þráðinn til hans yfir heimshöfin til að rabba um skyggnar mangastelpur, koddablæti karatemeistara og skilnaðarkrísu geðþekka grínistans Peta Holmes, áður en þeir félagar flytja greinargóða gamanhrollvekjuhugvekju....more1h 34minPlay
August 17, 2015Hefnendurnir 77 - Hinn eilífi hvolpurHetjurnar okkar háfleygu sameinast á ný yfir spjalli um Batmanhlutfallið í Súperman mynd, reifa innanhússendurinnréttingar Marvelheima og Ævorman innhverfuprófar Hulkleik – áður en þeir setja upp eldingarvarana og fara að ræða um uppáhaldstrúarbrögðin sín....more1h 8minPlay
August 10, 2015Hefnendurnir 76 - Tælingar GúmmívenusarÆvorman fór í helgarfrí þannig að Hulkleikur fékk gestahefnandann Lóbó (Lóu Hjálmtýs) til að gæða með sér á bláberjum og gaspra með sér um nördaleikfimi, ofurhetjuskriffinsku, þrívíddarklám og hvað það er erfitt að elska teiknimyndir eftir drullusokka....more1h 36minPlay
August 03, 2015Hefnendurnir 75 - We get itDrengirnir úrræðagóðu hnakkrífast um árstíðir Westeros, skapbresti Bruce Willis, spænskar skopmyndir en bregða svo undir sig leiðari fætinum er þeir minnast látins hryllingsfrumkvöðuls....more1h 47minPlay
July 27, 2015Hefnendurnir 74 - Blúndur BlökuhjólsinsHulkleikur og Ævorman vígja nýja upptökugræju með mórölskum vangaveltum um kjúklinga, kynjakvóta og krúsarann. Ævorman reynir að útskýra metafýsikina á bakvið meta og Hulkleikur segir eitthvað vafasamt um nasista....more1h 18minPlay
July 20, 2015Hefnendurnir 73 - Þúsund andlit Tildu SwintonOfurhetjurnar ódrepandi rísa skeinulausir úr gröfinni til að ræða Súperman með sítt að aftan og muninn á Jackson og Depp áður en þeir gera aðra atlögu að Fantastic Four. Því við vorum ekki búnir að klára að ræða Fantastic Four. Not by a long shot....more1h 34minPlay
July 13, 2015Hefnendurnir 72 - Dark ReignÍ sínum nýjasta þætti reyna hetjurnar okkar að leysa leyndarmál tilvistarinnar, Ævorman opinberar uppljómun sína um lífið, tilveruna og allt og Hulkleikur fer að gráta er hann reynir að skilja ástina í þessum tilfinningaþrungnasta hefnKKZZZCCHHRRZZ … hvaða hljóð var þetta?...more1h 24minPlay
FAQs about Hefnendurnir Gamli:How many episodes does Hefnendurnir Gamli have?The podcast currently has 211 episodes available.