Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Heilahristingur er léttur og skemmtilegur spurningaþáttur þar sem tvö lið svara spurningum um allt milli himins og jarðar. Þetta misserið mun nýr gestaspyrill vikunnar sitja með Jóhanni Alfreð um hver... more
FAQs about Heilahristingur:How many episodes does Heilahristingur have?The podcast currently has 55 episodes available.
November 28, 2021Sjónvarps- og kvikmyndahristingur - Átta liða úrslitÁfram halda átta liða úrslitin í sjónvarps- og kvikmyndahristingi. Það mætast stálin stinn í þætti dagsins. Gunnar Hansson, leikari og útvarpsmaður og Gagga Jónsdóttir, handritshöfundur og leikstjóri mæta liði Donnu Cruz, leikkonu og Hafsteins Sæmundssonar úr hlaðvarpinu Bíóblaður....more1h 15minPlay
November 21, 2021Sjónvarps- og kvikmyndahristingur - Átta liða úrslitÁtta liða úrslit í sjónvarps- og kvikmyndahristingi halda áfram í dag. Hjónin Tinna Hrafnsdóttir og Sveinn Geirsson mæta liði Hugleiks Dagssonar og Söndru Barilli í viðureign um sæti í undanúrslitum....more1h 15minPlay
November 14, 2021Sjónvarps- og kvikmyndahristingur - Átta liða úrslitHeilahristingur snýr aftur í dag og nú með nýju þema. Fram að jólum verður sjónvarps- og kvikmyndahristingur en allar spurningar munu tengjast sjónvarpsþáttum eða kvikmyndum með beinum eða óbeinum hætti. Átta lið hefja æsilega útsláttarkeppni þar til eitt lið stendur uppi sem sigurvegari í úrslitaþætti á annan dag jóla. Júlía Margrét Einarsdóttir verður þeim Jóhanni Alfreð og Helga Hrafni til halds trausts við spurningagerð og sem spyrill í seríunni. Í þessari fyrstu viðureign mæta skemmtikraftarnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Eva Ruza Miljevic liði uppistandaranna Snjólaugar Lúðvíksdóttur og Vilhelm Neto í hörkuspennandi keppni....more1h 15minPlay
August 01, 2021Íþróttahristingur - ÚrslitÞað er að komið að úrslitastund í íþróttahristingnum. Í dag mætast tvö hlutskörpustu liðin hingað til. Stefán Pálsson og Hjörvar Hafliðason mæta íþróttafréttamönnunum Þorkeli Gunnari Sigurbjörnssyni og Tómasi Þór Þórðarsyni í rafmagnaðri spennukeppni um sigurinn....more1h 15minPlay
July 25, 2021Íþróttahristingur - UndanúrslitSpennan er farin að magnast í Íþróttahristingnum og í dag er á dagskrá stórskemmtileg viðureign. Í þessari seinni undanúrslitaviðureign bítast lið Sólmundar Hólm og Baldurs Kristjánssonar við lið Hjörvars Hafliðasonar og Stefáns Pálssonar um síðara sætið í úrslitunum sem fara fram nú um verslunarmannahelgina....more1h 15minPlay
July 18, 2021Íþróttahristingur - UndanúrslitLeikar eru teknir að æsast í íþróttahristingnum sem hefur verið í loftinu í sumar. Og nú er komið að fyrri undanúrslitaviðureigninni. Í fyrri undanúrslitum mætast lið íþróttafréttafólks, þau Svava Kristín og Kolbeinn Tumi af Stöð 2 og Vísi sem mæta liði íþróttafréttamannanna Þorkels Gunnars og Tómasar Þórs í æsilegri viðureign....more1h 15minPlay
July 11, 2021Íþróttahristingur - Átta liða úrslitÞað er komið að síðustu viðureigninni í átta liða úrslitum. Að þessu sinni mæta Gunnar Helgason, rithöfundur og leikari og Hafrún Kristjánsdóttir, fyrrum handboltakona og sálfræðingur liði íþróttafréttamanna, þeim Tómasi Þór Þórðarsyni og Þorkeli Gunnari Sigurbjörnssyni í hörkuviðureign....more1h 15minPlay
July 04, 2021Íþróttahristingur - Átta liða úrslitÁtta liða úrslitin í Íþróttahristingnum halda áfram í dag. Margrét Lára Viðarsdóttir og Gunnar Sigurðarson mæta þeim Sólmundi Hólm og Baldri Kristjánssyni í hörkukeppni....more1h 15minPlay
June 27, 2021Íþróttahristingur - Átta liða úrslitÁtta liða úrslitin í Íþróttahristingnum halda áfram í dag. Í dag mætir lið Stöðvar 2 og Vísis, þau Kolbeinn Tumi Daðason og Svava Kristín Grétarsdóttir liði knattspyrnukvennanna Mist Edvardsdóttur og Ásgerðar Stefaníu Baldursdóttur....more1h 15minPlay
June 20, 2021Íþróttahristingur - Átta liða úrslitHeilahristingur heldur áfram í sumar og að þessu sinni er það Íþróttahristingur. Átta lið hefja leik í skemmtilegri útsláttarkeppni þar sem allar spurningarnar munu tengjast íþróttum með beinum eða óbeinum hætti. Sigurvegari verður svo krýndur í úrslitaþætti um verslunarmannahelgina. Og í þessari fyrstu keppni mætir lið Andra Ólafssonar og Fanneyjar Birnu Jónsdóttur liði Stefáns Pálssonar og Hjörvars Hafliðasonar í æsilegri keppni....more1h 15minPlay
FAQs about Heilahristingur:How many episodes does Heilahristingur have?The podcast currently has 55 episodes available.