
Sign up to save your podcasts
Or


Hvað höfum við hér? Jú það er Tortímandinn! Ein vinsælasta mynd Arnold og Cameron, ódauðlegur karakter sem lifir enn með okkur 40 árum síðar. Þetta er classic!
Næsta mynd er Terminator 2
Þetta er áramótaþátturinn, hann er langur og hann er vissulega veisla! Við förum yfir marga topplista tengda Heimabíó, mögulega rífumst við og mögulega erum við sammála. Kemur í ljós.
Síðasta jólamyndin okkar er ein yndislegasta mynd sem hægt er að horfa á, alveg eins og jólin eiga að vera. Gleðileg jól.
Óli Jóels kíkti á okkur strákana í heimsókn og valdi mynd vikunnar en það er engin önnur en Christmas Vacation, eitthvað sem Óli og Sigurjón eru sammála um að sé besta jólamynd allra tíma. Það er mikið hlegið og spjallað um allt milli jóla og Eddie.
Næsti þáttur er Home Alone
Þetta er Die hard, hvað viltu að ég skrifi hérna?? DIE HARD!
Næsta mynd er Christmas Vacation með Óla Jóels
Jej við fengum gest!! Hann Hafsteinn sem heldur upp vinsæla hlaðvarpinu Bíóblaður mætti til okkar og fékk að velja mynd vikunnar en það er engin önnur en Sing Street? Hvaða mynd er það spyrðu kannski en Sigurjón og Tryggvi voru á sama máli. Það var margt sem kom okkur á óvart en þó ekkert meira en hvað Tryggva fannst gaman að fá að tala við einhvern annan en Sigurjón svona einu sinni
Það styttist í jólin en á undan henni kemur þakkargjörðin og þetta er myndin sem öskrar á áhorf áður en skorið er í kalkúnin, gobble gobble. Steve Martin og John Candy eiga yndislega kemistríu í leikstjórn John Hughes
Næsta mynd er Sing Street
Tilgangur hlaðvarpsins var nú ekki að tala um nýjar myndir en það er helvíti erfitt að sleppa þessari, við mælum með því að horfa á myndina áður en ef ekki þá munið þið samt njóta.....örugglega.
Næsta mynd er Plains Trains And Automobiles
Já þið lásuð rétt, við fórum á deit. Þetta er rómantísk gamanmynd og hvað er rómantískara en að setjast niður með rauðvín, ræða stóru málin og kynnast aðeins betur. Við förum í sálarskoðanir, ræðum spurningarnar sem myndin spyr og kynnumst hvor öðrum betur. Hvort að það hafi verið góð hugmynd er annað mál...
Næsta mynd er Everything Everywhere All At once
From the publisher's feed