Heimsending

Heimsending

Download on the App Store

Heimsending episodes

  • #10: Gluggaveður
    Gerðu okkur greiða; líttu út um gluggann. Hvað sérðu? Er blessuð blíðan? Er BONGÓ? Think again. Þetta er gluggaveður. Sólin lokkar þig út eins og mús í gildru, út í kuldann, út í nístings rokið. En innst inni veistu það samt. Þú veist að það er verið að ljúga að þér og það gerir þig einmitt mennskan, sem er ekki endilega hrós. Dofinn, uppgjöfin og umkomuleysið. Við erum öll bara að díla við hvað allt er absúrd og yfirborðskennt. Þú ert bara að draga af þér maskann eins og Patrick Bateman, en undir maskanum er bara tómið, myrkrið, og þú heldur áfram að flysja þig eins og skemmdan lauk, lag fyrir lag. Í staðinn stingurðu bara hausnum í sandinn, hendir þér út í kviksyndið; Youtube, Netflix, the Kardashians (eða Kattarshians) og Klám. Lætur þig sökkva ofan í sófann og instagrammar gluggaveðrið. Í 10. þætti pæla Jói og Snorri í gluggaveðri og bjartsýni.
    47 min
  • #9: Vampírur
    Vampírur voru einu sinni hættulegar. Núna er þær sexí. Það er ennþá hættulegra. Við erum fokkd!
    1 hr 5 min
  • #8: Holur
    Hola Íslenskra Fræða, golfholur og borholur eru á meðal þess sem rætt er í þætti dagsins. Einnig verður greint frá því hvernig Jesú fann upp glory holes.
    45 min
  • #7: Bananahýði
    Bananahýði eru til margs nytsamleg, en eins og gamanmyndir í gegnum árin hafa svo sannarlega sýnt eru þau stóóóórhættuleg. Passið ykkur.
    51 min
  • #6: Klisjur
    Það er fátt meira beisik en að fara með deit í ísbíltúr. Það er klisja sem virkar. Klisjur geta verið geggjaðar. Þægilegar, þær hitta naglann á höfuðið, segja flókna hluti í fáum orðum. En. og það er stórt EN! Klisjur eru líka hættulegar. Þær einfalda í fjölriti og smitast eins og eldur í sinu. (Er ég að fara með rétt mál hérna?) Allavega, notið klisjur, en passið ykkur.
    49 min
  • #5: Skrifstofur
    Jakkafatakakkalakkar. Powertrip. Skipalakk í hárinu. Neyðarástand. Það þarf að bregðast við. Heiminum er stjórnað af skrifstofum og skrifstofur eru ömurlegar. Fyrir vikið spila skrifstofur stórt hlutverk í komandi heimsendingu. "Komdu með okkur inn á fundarherbergi, við skulum ræða þetta aðeins."
    43 min
  • #4: Stjörnuspeki
    Fastastjörnurnar, þyrilþokurnar og sólkerfin hafa mótað líf okkar í margar aldir. Þetta veit fólk. Myrka hlið tunglsins getur hæglega sagt til um það hvort þú sért áræðinn, feiminn eða illa gefinn. Jói og Snorri skjóta sér út í geim og reyna að draga línur á milli stjarnanna og finna hvernig stjörnuspeki mun rústa okkur. Hvernig mun okkur líða þegar við opnum Moggann og allar stjörnuspárnar segja það sama og Utangarðsmenn: Þið munuð öll, þið munuð öll, þið munuð öll deyja?
    42 min
  • #3: Strigaskór
    Þegar Chuck Taylor tróð sér í fyrsta gúmmísólann varð ekki aftur snúið. Jói og Snorri taka hér þrístökkið í átt að heimsendi á 40 þúsund króna Yeezy skóm og reyna að átta sig á því hvaða hlutverk strigaskór leika í heimsendi.
    43 min
  • #2: Sláttuvélar
    Landbúnaðarbyltingin hófst fyrir um 10.000 árum, maðurinn náði betri tökum á náttúrunni og endalokin hófust. Í annarri heimsendingu reyna Jói og Snorri að kryfja sláttuvélina, verkfæri sem virðist saklaus en þegar betur er að gáð leynast í henni drög að síðasta kaflanum. Það verður spennandi að vita hvort grasflatir jarðar verða snyrtilegar og fínar þegar Kronus kemur með ljáinn og við endum öll í heybagga endalokanna.
    44 min
  • #1: Typpi
    Utan á myndaalbúmi mannkynssögunnar er þrútinn morgunbóner. Frá örófi alda hafa karlmenn drottnað yfir sögu og menningu þessarar dýrategundar með sínum typpateikningum, yfirgangi og látum. Í fyrstu heimsendingunni ætla Jói og Snorri að ráðast á garðinn þar sem hann rís hæst og tala um typpi því það þarf að taka af borðinu, hreinsa pallettuna, áður en öll umræða um heimsendi getur hafist.
    37 min

About Heimsending

From the publisher's feed

Sókratísk samræða tveggja hvítra karlmanna. Þeir hafa leitt hafa saman hestöfl sín, eru forvitnir og léttir á bárunni. En þeir hafa líka áhyggjur af endalokunum. Allt er í heiminum hverfult og…