Í Tengivagninum í dag verður rætt við Sólveigu Önnu Bóasdóttur, guðfræðing, um heilagleika og helgispjöll, en þessi hugtök hafa verið í umræðunni eftir umdeildan gjörning Snorra Ásmundssonar í Hríseyjarkirkju nú um helgina.
Við rifjum líka upp gamalt viðtal við Úlfar Þormóðsson, en í ár eru 35 ár frá því að Úlfar var dæmdur fyrir guðlast fyrir myndaþátt í skopmyndablaðinu Spegillinum
Gréta Kristín Ómarsdóttir, leikstjóri, heimsækir þáttinn og spjallar um yfirstandandi verkefni, m.a. sýninguna Insomnia sem verður frumsýnd í Þjóðleikhúsinu í haust, en þar skoðar leikhópurinn Stertabenda áhrifin sem vinsælustu gamanþættir okkar tíma hafa haft á sjálfsmynd kynslóðanna.
Áslaug Torfadóttir sjónvarpsrýnir er á svipuðum nótum í þætti dagsins og fjallar um svokallaðar kjánakómedíur á borð við 30 Rock.