Gunnar Dofri Ólafsson lögfræðingur Viðskiptaráðs er gestur Hismisins í þessari vikunni. Farið er yfir verkföllin, kosningabíl Eflingar og hvort lykill að lausn sé samhent átak helstu skyndibitastaða landsins með tvöfaldri Megaviku strax í kjölfar undirritunar nýrra kjarasamninga. Rætt er um manninn sem þóttist vera lögreglumaður, handtók fólk og fór með upp á Hverfisgötuna, auk þess sem afmæli bjórsins er rætt og hvaða bjóra Íslendingar, þar á meðal flugumsjónarmaðurinn í Grímsey, voru að vinna með 1. mars 1989.