Í Rabbrýminu er allur búnaður sem þarf til upptöku og vinnslu hlaðvarps til staðar. Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref er starfsfólk til staðar til að fara yfir formsatriðin og aðstoða fyrst um sinn.
Skúffuskáld, skoðanapésar, grúskarar, bókabéusar og allir þeir sem hafa ótakmarkaða þörf til að koma sér út í kosmósið - þið eruð hjartanlega velkomin í Rabbrýmið.
Fyrir upplýsingar um aðstöðuna og aðrar spurningar ekki hika við að senda tölvupóst á
[email protected]