Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Hlaðvarp Iðunnar er fyrir fagfólk í iðnaði og þá sem hafa áhuga á að auka þekkingu sína á sviði iðngreina. Tekin eru viðtöl við sérfræðinga, kennara og fólk úr atvinnulífinu sem miðla þekkingu sinni o... more
FAQs about Hlaðvarp Iðunnar:How many episodes does Hlaðvarp Iðunnar have?The podcast currently has 102 episodes available.
April 15, 2024Fræðslustjóri að láni, með Guðrúnu Blandon mannauðsstjóra VHEVHE fór því nýlega í gegnum verkefnið Fræðslustjóri að láni. „Helstu markmið með verkefninu var að fá heildaryfirsýn yfir fræðsluþörfina og skipuleggja fræðslustarf framtíðarinnar“ segir Guðrún Blandon mannauðsstjóri. Hún mælir aukna starfsánægju hjá starfsfólki sem hún vill tengja beint við verkefnið.Þetta og margt fleira í þessu fræðandi og skemmtilega spjalli...more36minPlay
April 03, 2024Erasmus+ ævintýri í Tallin, með Ástrósu Elísu Eyþórsdóttur bakara hjá Bláa lóninuVið útskrift úr bakaraiðn fann Ástrós fyrir faglegri þreytu og langaði í nýja reynslu sem myndi styrkja hana sem fagmann. Hún kynnti sér því Erasmus+ fyrir nýsveina og setti stefnuna á Kaupmannahöfn. Málin þróuðust þó þannig að hún endaði á því að fara til Tallin í Eistlandi og sér ekki eftir þeirri ákvörðun.Helen Gray leiðtogi alþjóðaverkefna hjá Iðunni spjallar hér við Ástrósu um reynsluna af því að fara út til Tallin....more22minPlay
March 22, 2024Fræðslumál hjá Samkaupum, með Guðna Erlendssyni mannauðsstjóraEva Karen Þórðardóttir hjá Effect ræðir hér við Guðna Erlendsson mannauðsstjóra Samkaupa. Mikil saga og menning er fyrir fræðslu hjá Samkaupum. Kaupmannsskólinn var rekinn eins og hefðbundinn skóli með staðbundnum námskeiðum sem nú hafa verið færð mikið til yfir í rafræna fræðslu. Covid hjálpaði til við að ýta undir umbreytinguna þó að vissulega hafi sú vinna verið hafin áður. Guðni segir Samkaup einnig vera í góðum samskiptum við Bifröst hvað varðar námsleiðir fyrir starfsfólk....more37minPlay
March 15, 2024Fræðslumál hjá Isavia, með Gerði Pétursdóttur fræðslustjóraAlþjóðaflugvöllurinn í Keflavík fær til sín margar milljónir gesta ár hvert. Það kallar á að starfsfólk viti nákvæmleg til hvers er ætlast af því og hlotið viðeigandi þjálfun. Gerður Pétursdóttir fræðslustjóri Isavia er hér í skemmtilegu og fræðandi spjalli en hún hefur ásamt öflugu teymi byggt upp Isavia skólann síðan árið 2016....more53minPlay
February 22, 2024Tilskipun ESB um upplýsingagjöf í sjálfbærni, með Jennifer Schwalbenberg lögfræðingiÁsgeir Valur Einarsson leiðtogi sjálfbærnimála hjá Iðunni ræðir hér við Jennifer Schwalbenberg lögfræðing um tilskipun ESB um sjálfbærniupplýsingagjöf og hvernnig hún á eftir að hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki. Upplýsingagjöf í sjálfbærni felur í sér hvernig við komum á framfæri þeim upplýsingum sem við erum að safna um sjálfbærniþætti og tilgreinir þau markmið og stefnur sem settar eru varðandi m.a. kolefnisspor, loftlagsmál og starfsmannastefnu....more22minPlay
February 21, 2024Starfsemi Tækniseturs og nýsköpun, með Guðbjörgu H. Óskarsdóttur framkvæmdastjóra TæknisetursGuðbjörg Hrönn Óskarsdóttir framkvæmdastjóri Tækniseturs er hér í afar fróðlegu spjalli við Kristjönu Guðbrandsdóttur leiðtoga nýsköpunar hjá Iðunni. Tæknisetur byggir á fjögurra áratuga reynslu á sviði efnistækni, lífvísinda og orkumála. Það er öflugur samstarfsaðili í hagnýtum rannsóknar og þróunarverkefnum og býr yfir sérhæfðum búnaði og aðstöðu sem er gagnast sprotafyrirtækjum á sviði hátækni....more28minPlay
February 09, 2024Umferðaröryggi, með Ólafi Guðmundssyni sérfræðingi í umferðaröryggismálumÓlafur Guðmundsson sérfræðingur í umferðaröryggismálum er hér í fróðlegu spjalli um umferðaröryggi, innviði og bifreiðar. Þeir Sigurður Svavar Indriðason, leiðtogi bílgreina hjá Iðunni, fara m.a. yfir hvað er vel gert í þeim efnum og hvað má betur fara....more39minPlay
February 02, 2024Fræðslumál hjá Vatnajökulsþjóðgarði, með Ragnheiði Björgvinsdóttur mannauðsstjóraRagnheiður Björgvinsdóttir er hér í léttu og skemmtilegu spjalli við Evu Karen Þórðardóttur um fræðslumál hjá Vatnajökulsþjóðgarði. Vatnajökulsþjóðgarður er stærsti þjóðgarður í vestur Evrópu og nær yfir 15% af Íslandi. Þjóðgarðurinn nær til átta sveitafélaga.Um 50 starfsmenn starfa við þjóðgarðinn allan ársins hring. Sumarið er svo mjög annasamur tími með 120 starfsmenn, sem dreifast út um allt land. Fræðslan er því ákveðin áskorun....more27minPlay
January 26, 2024Ævintýri í Evrópu í gegnum Erasmus+, með Ingu Birnu Antonsdóttur hjá IðunniInga Birna Antonsdóttir alþjóðafulltrúi hjá Iðunni er hér í skemmtilegu spjalli um möguleika Erasmus+ styrkjakerfinsins sem er ætlað að auka möguleika á skiptinámi og lærdómi erlendis í gegnum Erasmus+....more36minPlay
January 16, 2024Sketchup, með Birni Jóhannssyni landslagsarkitekt hjá Urban Beat DesignHér spjalla þeir Óskar Grétarsson leiðtogi málm- og véltæknigreina hjá Iðunni og Björn Jóhannsson landslagsarkitekt um notkunarmöguleika SketchUp forritsins fyrir iðnaðinn. Þeir fjalla sérstaklega um námskeið sem Björn heldur hjá Iðunni þar sem farið er í grunninn á forritinu, Sketchup pro og Layout og Twinmotion og sýndarveruleika. Sérstakar vinnubúðir eru einnig í boði þar sem fólk getur unnið að raunverulegum verkefnum....more20minPlay
FAQs about Hlaðvarp Iðunnar:How many episodes does Hlaðvarp Iðunnar have?The podcast currently has 102 episodes available.