
Sign up to save your podcasts
Or


Það vill svo skemmtilega til að ein umtalaðasta kvikmynd ársins er einmitt byggð á bók, og það engri smábók! Ódysseifskviða Christophers Nolan tröllreið bíóhúsunum fyrr á árinu og Lestrarklefinn setti sína bestu lesara og horfara í málið. Það duggði þó varla til því það þurfti að kalla til nýjan og ferskan penna, hana Guðrúnu Ágústu, sem segir Sjöfn og Díönu Sjöfn aðeins frá þessari miklu bók og bíómyndinni sem gerð var eftir henni.
Umsjón: Sjöfn og Díana Sjöfn
Hvað lásuð þið í sumar? Hvað ætlið þið að lesa í haust? En í vetur? Rebekka Sif og Sjöfn bera saman bækur sínar í orðsins fyllstu merkingu og fara yfir hvað stóð upp úr í sumarlestrinum og ræða um næstu bækur sem vekja spennu í þessum fyrsta hlaðvarpsþætti lestrarklefans þetta haustið!
Í síðasta þætti sumarsins fjalla Sjöfn og Rebekka um sumarlestur. Hvða ætla þær að lesa í sumar, hvað ætla þær ekki að lesa, og hvað les fólk almennt? Hvað er sumarlestur og hvaða bækur eru tilvaldar í hann?
Umsjón þáttar, Sjöfn Asare og Rebekka Sif
Er Kindred Yesteryear 1976? Þeirri spurningu og öðrum í þeim dúr verður svarað í þessu spjalli Sjafnar og Rebekku um bókina Kindred eftir Octaviu E. Butler og sjónvarpsaðlögunina á henni frá 2022.
Umsjón: Sjöfn Asare og Rebekka Sif
Lestrarklefinn fær góða gesti í hlaðvarpi vikunnar, Elísu Rún Svansdóttur og Amöndu Líf Fritzdóttur, sem báðar hafa ritstýrt bókmenntatímaritinu Leirburði. Tímarit sem þessi eru einstaklega mikilvæg grasrótinni og Rebekka Sif fékk að forvitnast um þetta góða starf bókmenntafræðinema Háskóla Íslands.
Umsjónarmaður: Rebekka Sif Stefánsdóttir
Rebekka og Sjöfn ræða hina geysivinsælu skáldsögu Yesteryear sem hefur aldeilis slegið í gegn á skömmum tíma. Rebekka spyr Sjöfn út í hefðbundnar húsmæður (e. Tradwives), en Sjöfn hefur kafað djúpt í þennan áhugaverða og merkilega mormónska subkúltúr sem tröllríður samfélagsmiðlum og hefur djúpstæð áhrif víða um samfélagið.
Umsjón: Rebekka Sif og Sjöfn Asare
Díana Sjöfn og Sjöfn ræða bókina "Half his Age" eftir unghöfundinn Jeanette McCurdy, sem þekktust er fyrir feril sinn á Disney stöðinni og fyrir endurminningarsögu sína "I'm Glad My Mom Died."
Bókin fellur í flokk þeirra ritverka sem fjalla um ungar konur eða stelpur sem eiga í ástarsamböndum við, eða eru táldregnar af, eldri mönnum, sem eiga það mjög oft sameiginlegt að vera enskukennarar. Hvers vegna eru þessar sögur svona vinsælar? Hvað lærum við á að lesa þær ef eitthvað? Og hvers vegna halda allir að enskukennarar séu þeir kennarar sem eru hvað líklegastir til að beita nemenda sína kynferðisofbeldi?
Umsjón: Sjöfn Asare og Díana Sjöfn
Úr bók í bíó snýr aftur með æsispennandi umfjöllun um hina umdeildu aðlögun "Wuthering Heights," sem Sjöfn gerist svo djörf að kalla það versta sem nokkru sinni hefur verið fest á filmu og kallað bíómynd.
Umsjón: Sjöfn Asare og Rebekka Sif
Jæja. Eftir mikla tæknilega örðugleika við framleiðslu og útgáfu þáttarins um bókmenntahátíðina Queer Situations snýr hann aftur á streymið. Sjöfn og Unnur Steina ræða við þær Evu Rún og Höllu um æsispennandi bókmenntahátíðina sem þær standa fyrir þar sem alls konar hinsegin bókmenntir eru í fyrirrúmi.
Umsjón: Sjöfn Asare
Hinsegin bókmenntahátíðin Queer Situations leggur áherslu á hinsegin bókmenntir í fleiri en einum skilningi, og þá varð Lestrarklefinn að forvitnast meira umþað. Sjöfn og Unnur Steina ræða við þær Evu og Höllu sem skipuleggja hátíðina um dagskrána, bækur höfunda sem skilgreina sig sem hinsegin en bókmenntir sem almennt falla út fyrir meginstrauminn.
Við vekjum athygli á að Sjöfn gleymdi að loka glugga svo það eru leiðinleg aukahljóð í upptökunni. Vonandi truflar það þáttinn ekki um of og Sjöfn lofar að taka sig á fyrir næsta þátt.
Umsjónarmaður þáttar: Sjöfn Asare
From the publisher's feed
Í hlaðvarpi Lestrarklefans ræða þáttastjórnendur við fjölbreytta lesendur um öll málefni tengd bókmenntum, lestri og menningu. Fáðu þér endilega sæti í Lestrarklefann.