
Sign up to save your podcasts
Or


Brakandi ferskur föstudagur í styttingu sem heldur sambandinu gangandi með heitt ceremonial cacao á kantinum og barn á brjóstinu. Já, það er komið kvef-season og hvarmabólgu-season og við alltaf 20% stífluð og það er víst það sem við þurfum að venjast! Fórum yfir ýmis ráð við kuldanum og fyrst og fremst hvernig maður ver húð og augu fyrir þessu hnjaski! Fyrsta 8x8 paraþrekmótinu lokið og margt sem gekk vel og annað sem hefði getað gengið betur! Kudos á þau Ultraform parið og hlökkum til að endurtaka leikinn.
Þessi þáttur er í boði:
- Optical Studio👓
- Hreysti💪
- Kerlingafjöll Ultra⛰️
Hvíldartímabili lokið og langt uppbyggingartímabil hafið! Spennandi tímar, þrekmótaröð og Hyrox innifalið í því tímabili! Fórum yfir brautaræfingar, fjölskyldulífið, sturlaðan árangur Andreu Kolbeins í S-Kóreu og margt fleira!
Þátturinn er í boði “Hreysti”
Berlínarmaraþons uppgjör! Fórum yfir maraþondaginn, tvær gjörólíkar upplifanir af maraþoni og ýmsar skemmtilegar hliðar á því að fara í svona stórt maraþon. Nú er komið langþráð hvíldarseason og við hlökkum til að taka Hyrox föstum dögum á næsta season! Stay tuned!
Þátturinn er í boði “Optical Studio” og “Hreysti”
KLÁR Í BERLÍNARMARAÞONIÐ!
Tapering veikin tók yfir með hinum ýmsu draugaverkjum, veikindatilfinningu og andlegu ójafnvægi! Verkfalli flugvirkja aflýst og við komumst út, en lendingin var hörð og áfram smávægilegar uppákomur við komu til Berlínar, en þetta var allt saman bætt upp með vægast sagt sturluðu hóteli😲👑
Þátturinn er í boði Optical Studio og Hreysti!
Tapering tímabilið er formlega hafið! Því fylgir að sjálfsögðu óvæntar uppákomur eins og ristilspeglun, blöðrur á fótum og yfirvofandi verkfall flugvirkja😲
Fórum yfir lokametrana í preppi fyrir Berlín og ýmsar vangaveltur varðandi búnað, startholl og þar fram eftir götunum. Stay tuned!
Þátturinn er í boði “Hreysti” og “Optical Studio”
#75 þáttur af Hlaupalíf Hlaðvarp kominn í loftið. Umfjöllunarefni:
-Sigur EES í 1/2 MÞ í Rvk-maraþoninu
- Staðan á road2Berlin
-Næst síðasti langi túrinn sem við tókum saman LOKSINS
- Krafturinn í hlaupunum fyrir okkur foreldrana
-Lok afmælisvikunnar
-UTMB shout out
Hlaupalíf keyrir af stað afmælisvikuna með brakandi ferskum þætti. Tökum stöðuna á road2Berlin, erum við að trust the process, vangaveltur um langatúrinn sem reynir vel á hausinn, vlog-ið hjá Andreu Kolb., sólmyrkrinn og margt margt fleira!
.
Umfjöllunarefni:
*Elin Edda að hamra Súlur
*Berlín þokast nær og nær
*Frammistöðukvíði
*Næring í löngu túrunum
*Sumafrí fjölskyldunnar ‘26 og lífið almennt
Hlaupalíf heldur áfram umfjöllun um Road to Berlin’26. Erum að ljúka þriðju æfingavikunni í Run Less Run Faster prógramminu og förum yfir hvernig það hefur gengið. Eru æfingar á Air Runner too good to be true? Endorfínvíma eftir æfingar er aðeins of góð (og ávanabindandi). Fjölskyldulífið í fríi með þrjú börn. Bubbi, Eminem o.fl.ofl.
Hlaupalíf orðin fimm manna fjölskylda. Ekki lengur maður á mann og við að hefja 12 vikna æfingablokk fyrir Berlínarmaraþonið í sept’ 26! Við förum yfir óhefðbundna nálgun okkar að maraþonundirbúningi og ætlum að leyfa ykkur að fylgjast með næstu misserin. Stay tuned!