Hormónar

Hormónar

Download on the App Store

Hormónar episodes

  • Adrenalín
    Í þessum þætti Hormóna verður í fyrsta sinn einblínt á eiginleg hormón. Hvað vitum við í raun og veru um adrenalín? Adrenalíngarðurinn verður sóttur heim, spjallað verður við lífeðlisfræðing og adrenalínfíkla og konu sem lifði af hættulega árás - mögulega þökk sé adrenalíni.
    46 min
  • Tilgangur
    Allt frá tímum Platóns, og sennilega lengur, hafa heimspekingar velt fyrir sér spurningunni um tilgang lífsins. Spurningin er tímalaus, og hún er gjörsamlega án staðsetningar. Í þessum þætti Hormóna er tilgangurinn skoðaður. Tilgangur alls, tilgangur lífsins, tilgangsleitin. Ásamt því að skoða ríkjandi kenningar og birtingamyndir tilgangsins í menningu okkar og sögu, er tilgangurinn skoðaður með ólíkum aðilum samfélagsins.
    57 min
  • Heimþrá
    Hvað er heimþrá? Er heimþrá eitthvað sem að hrjáir aðeins ung börn eða er heimþrá tilfinning sem fylgir okkur alla ævi? Hvar er heima? Það virðist vanalega vera þannig að fólk kalli aðeins einn stað heima. En er hægt að líta á fleiri en einn stað sem heima? Hvað þýðir „Home is where the heart is?'' eða „Heima er best, heima er kært, heima er þar sem hjartað er?''. Í þessum þætti Hormóna er heimþráin m.a. skoðuð með sálfræðingi, fanga og íslendingum sem búa erlendis.
    53 min
  • Raddir
    Fyrsti þáttur Hormóna er tileinkaður röddinni en spurt er hvaða hlutverki gegna raddir í lífi okkar?
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir.
    45 min

About Hormónar

From the publisher's feed

Anna Gyða Sigurgísladóttir tekur hlustendur í ævintýraferð um heima tilfinningalífsins og mannlegs eðlis. Fjallað verður um allt frá kynlífi til dauða. Hormónar í hlaðvarpinu, RÚV.is/hladvarp á…