Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson.
Gestur: Hreimur Örn Heimisson söngvari hljómsveitarinnar Land og Synir
Hér heyrum við um tónlistarlega misþroska sveitadreng, son svínabóndans og ferðalag hans um níuna.
Það er óhætt að segja að það hafi verið hressandi ferðalag.
Allt frá upphafi áratugarins þegar Hreimur hefur engan áhuga á tónlist yfir í heimsyfirráð... næstum því.
Hreimur var lengi að taka á móti helstu stefnum og straumum í tónlistinni og segist eiga eftir að uppgötva helling af góðu efni.
Við heyrum af gosdrykkjaframleiðanda stríðinu, meikinu í Bandaríkunum, 911 og hvernig hann sópaði næstu Sálinni hans Jóns míns inn í bandið sitt Land og syni.
Nokkrar gleymdar dægurperlur níunnar og sögur poppstjörnu, frá svínabúinu á toppinn og svo lengra... næstum því.
Skemmtilegt í bæði eyru