Í þessum þætti fáum við til okkar Kristrúnu Frostadóttur, alþingismann, Gunnar Haraldsson, hagfræðing og framkvæmdastjóra Intellicon og Hönnu Kristínu Skaptadóttur, lektor við Háskólann á Bifröst og ræðum hagmálin í stóru samhengi. Við tölum um vaxandi ójöfnuð, framtíðina, nýja tækni, fasteignamarkaðinn, gervigreind og “fjórðu iðnbyltinguna” svokölluðu.