Skyndibitinn

Hugleiðing um mannlegt hlutskipti og dauðleika


Listen Later

Gilgameskviða frá Mesópótamíu er meðal elstu varðveittu rituðu bókmenntaverkum sögunnar, enda talið að uppruna kviðunnar megi rekja til súmerskra þjóðsagna þ.e.a.s. frá því um 2000 f.Kr. Í grófum dráttum má segja að söguljóðið fjalli um afrek konungs að nafni Gilgames, og samband hans við þegna sína sem og vin að nafni Enkídú. Í Gilgameskviðu er töluvert af ævintýrum og fundum með sérkennilegum verum og guðum. Kviðan er eins konar stúdía um vald, hugleiðing um mannlegt hlutskipti, um dauðann, vináttu, ást, hefnd, missi, eftirsjá, einmanaleika, og ýmislegt annað sem á erindi við samtímann.
Við skoðum Gilgameskviðu nánar í þætti dagsins.
Viðmælandi er Hjalti Snær Ægisson, bókmenntafræðingur
Skyndibitinn er sýrlenskt kebab
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SkyndibitinnBy RÚV