hún hlaðvarp

hún hlaðvarp

By Erna Hrund HermannsdóttirBusinessCareers
Download on the App Store

hún hlaðvarp episodes

  • hún hlaðvarp #20 Ásdís Kristjánsdóttir

    Gestur þáttarins er Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, iðnaðarverkfræðingur og hagfræðingur.

    Í dag ætlum við að tala um konuna á bak við embættið. Um stelpuna úr Breiðholti sem ætlaði að verða læknir, um móðurhlutverkið samhliða stjórnendastöðu, um samning um eldhúsið, og um það hvernig maður stígur enn lengra inn í sviðsljósið þegar maður þarf þess ekki.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko, Nespresso og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

    1 hr 48 min
  • hún hlaðvarp #19 Viktoría Hermannsdóttir

    Gestur þáttarins er Viktoría Hermannsdóttir, dagskrárgerðarkona hjá RÚV, mannfræðingur og meistari í hagnýtri menningarmiðlun.

    Í þættinum tölum við um það hvernig atvinnuspyrjandi er sjálf spurð. Um barn sem fékk frí í skólanum til að fara í jarðarfarir með ömmu sinni og afa, um þrettán ára sölukonu sem var strax komin með sinn eigin kúnnahóp, um skólablað í Breiðholti sem seldi auglýsingar út um allt hverfið, um símtalið sem hún hringdi sjálf komin fimm mánuði á leið, um eitt útvarpsviðtal sem varð að verðlaunum, meistaragráðu og bíómynd, um draumaverkefni sem byrjar þegar hún er 39 ára og um það hvernig kona hættir að bíða eftir að vera uppgötvuð.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

    1 hr 48 min
  • hún hlaðvarp #18 Jenna Huld Eysteinsdóttir

    Gestur þáttarins er Jenna Huld Eysteinsdóttir, húðsjúkdómalæknir, doktor í læknavísindum, meðeigandi Húðlæknastöðvarinnar og stofnandi Húðvaktarinnar.

    Í dag ætlum við að tala um hvernig vísindakona verður frumkvöðull, í geira þar sem flestir láta sér nægja að vinna vinnuna sína. Um stærsta líffærið okkar, sem við tökum bara eftir þegar það er fallegt. Um biðlista sem varð að fyrirtæki, um doktorsritgerð sem var skrifuð með þrjú börn og lista af barnapíum, um sólarvörn í október og ljósabekki sem enginn hefur bannað, og um það hvernig kona lærir að segja hlutina upphátt.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

    2 hr 13 min
  • hún hlaðvarp #17 Safa Jemai

    Gestur þáttarins er Safa Jemai, hugbúnaðarverkfræðingur, forstjóri og meðstofnandi Treyst.ai, stofnandi hugbúnaðarfyrirtækisins Víkonnekt og kryddfyrirtækisins Mabrúka.

    Safa er fædd í Túnis árið 1994. Hún kom fyrst til Íslands sumarið 2017 sem sjálfboðaliði í gróðurhúsi í Hveragerði og fór heim með þá tilfinningu að hún ætti eitthvað óklárað hér. Ári síðar flutti hún, ein, lærði íslensku á fimm mánuðum, kláraði hugbúnaðarverkfræði í HÍ og stofnaði á meðan hún var enn í námi tvö fyrirtæki og vann Gulleggið með því þriðja. Hún var valin Rising Star of the Year á Nordic Women in Tech Awards 2023, situr í útflutnings- og markaðsráði Íslandsstofu og kynnti í vor gervigreindarlausn sem íslensk ráðuneyti, EFTA og ESA komu að og sem nágrannalöndin eru farin að spyrja um.

    Í dag ætlum við að tala um hvernig maður byggir sér líf og fyrirtæki í landi þar sem allir þekkja alla, nema þig. Um móður sem vann frá sex á morgnana til níu á kvöldin, um krydd sem varð að fyrirtæki, um forritara í Túnis og lögfræðinga í ráðuneytum, og um það hvernig traust er unnið.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

    1 hr 48 min
  • hún hlaðvarp #16 Lilja Birgisdóttir

    Gestur þáttarins er Lilja Birgisdóttir, listakona, ljósmyndari og ein af stofnendum og eigendum Fischersunds.

    Lilja er fyrsti gesturinn í Hún sem ég ætla að kjósa aðkalla listakonu, fyrst og fremst. Kona sem hefur breytt listinni sinni í rekstur. Fischersund byrjaði með einum ilmi í tómu, svörtu húsi í Grjótaþorpinu fyrir tæpum níu árum. Í dag eru ilmirnir seldir hjá yfir hundrað söluaðilum víða um heim, fjölskyldan hefur haldið ilmtónleika í París, Seattle og Kaupmannahöfn, og í fyrra var Fischersund valið verk ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands. Og samhliða öllu þessu heldur Lilja áfram að sýnasem myndlistarkona.

    Það sem mér finnst merkilegast við hana er ekki hvað húnhefur byggt, heldur hvernig. Engar auglýsingar, enginn fjárfestir, engin hefðbundin leið. Bara listafólk sem ákvað að vinna saman og treysta því að fólk fyndi þau.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

    1 hr 26 min
  • hún hlaðvarp #15 Snædís Ögn Flosadóttir

    Gestur þáttarins er Snædís Ögn Flosadóttir. Peningum fylgja völd og konur fá ekki raunveruleg völd fyrr en þær fara fyrir fjármagni í meira mæli, en gestur þáttarins er ein af mjög fáum íslenskum konum sem gert einmitt það. Hún er forstöðumaður markaða hjá Arion banka og var áður framkvæmdastjóri þriggja lífeyrissjóða í einu og þá önnur af aðeins tveimur konum á landinu sem stýrðu lífeyrissjóði. Hún er iðnaðarverkfræðingur og ætlaði sér alls ekki að vinna í banka.

    Það sem mér finnst áhugaverðast við hana er ekki hverju hún stýrir, heldur hvernig. Hún segist hafa óskaplega gaman af því að tala, en að mikilvægasta venjan hennar sem stjórnandi sé að hlusta.

    Í dag tölum við um leiðina hennar, sem var hvorki bein né í réttri röð, um peninga og hvernig maður byggir upp heilbrigt samband við þá, og um hvernig kona leiðir með því að hlusta frekar en að taka mest pláss.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

    2 hr 4 min
  • hún hlaðvarp #14 Lóa Dagjört Kristjánsdóttir

    Gestur þáttarins í dag er Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir. Konu sem hefur fært okkur margar af þekktustu fataverslunum Norðurlandanna.

    Í lítilli íbúð í Halmstad í Svíþjóð, einhvern tímanní kringum 2010, sat kona við eldhúsborð. Borðið var þakið innkaupapokum og pökkum. Hún var með fartölvu í kjöltunni og barn á brjósti og var að slá inn pantanir. Þegar maðurinn hennar kom heim úr vinnunni ýtti hún tölvunni frá sér og sagði: „Nei. Nú vil ég ekki taka við fleiri pöntunum. Þetta er of mikið."

    Hún var í fæðingarorlofi. Hún hafði flutt út til að hægja á sér, baka pönnukökur og njóta þess að vera með strákunum sínum. Í staðinn stofnaði hún fyrirtæki.

    Í dag eru verslanirnar á þriðja tuginn og starfsfólkið hátt í tvö hundruð. Hún hefur tekið hvert vörumerkið á fætur öðru,merki sem fæstir hér þekktu og gert þau að einhverju sem heil þjóð kann skil á. Hún er með ekkert skipurit, því fólkið hennar hefur ábyrgðarhlutverk frekar en stað í skipuriti. Krakkarnir hennar eru með í rekstrinum og mamma hennar líka.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

    1 hr 45 min
  • hún hlaðvarp #13 Eva Ruza Miljevic

    Gestur þáttarins í dag er Eva Ruza Miljević. Þið þekkið hanaaf sviði, úr útvarpi, af skjánum, konuna sem er alltaf með míkrófóninn, alltaf með húmorinn, alltaf með orkuna sem fyllir salinn og oftar en ekki öskursyngjandi. En það sem mig langar að tala um í dag er ekki bara sviðið heldur líka árin á undan. Trúin sem hún hafði á sjálfri sér áður en nokkur vissi hver hún var og hvað það kostaði hana að stökkva.

    Það er til gamalt myndband, tekið heima í stofu í Kópavogi,þar sem lítil stelpa er spurð hvað hún ætli að verða þegar hún verði stór. Hún svarar án þess að hika: „Ég ætla að verða fræg."

    Um fjörutíu árum síðar má svo sannarlega segja að henni hafi tekist það.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

    1 hr 52 min
  • hún hlaðvarp #12 Dr. Þóranna Jónsdóttir

    Gestur þáttarins er Dr. Þóranna Jónsdóttir við tölum um konur í forystu, erfiðar ákvarðanir, áhrifin sem sjást ekki alltaf utan frá og hvað það þýðir að byggja sér leið, ekki með því að bíða eftir leyfi heldur með því að stíga inn.

    Sumar konur ganga ekki bara inn um dyrnar sem þeim er boðið inn um. Þær læra að opna nýjar dyr. Þær læra að sitja við borðin þar sem ákvarðanirnar eru teknar. Og stundum þegar þær eru komnar þangað breyta þær reglunum svo fleiri komist inn á eftir þeim. En hvernig verður maður sú manneskja sem er hringt í þegar mikið liggur við? Þegar fyrirtæki þarf nýja stefnu. Þegar stjórn þarf skýrari sýn. Þegar eitthvað er í vanda og einhver þarf að ganga inn í flækjuna, sjá kjarnann og segja: byrjum hér.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

    1 hr 51 min
  • hún hlaðvarp #11 Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

    Gestur þáttarins er Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, kona sem eflaust þarf ekki að kynna fyrir mörgum enda ein þekktasta sjónvarsp- og fjölmiðla kona landsins.

    Í dag situr hún í framkvæmdastjórn &starfar sem markaðs- & upplifunarstjóri Hagkaupa en þar hefur hún skapað sér nýtt hlutverk, ekki með því að loka á það sem hún var, heldur með því að byggja ofan á það.

    Í þættinum tölum við um hugrekki, sjálfsmynd, breytingar, metnað, móðurhlutverkið, pressuna sem fylgir því að vera kona í sviðsljósinu og hvað það þýðir að leyfa sér að byrja aftur og breyta til.

    hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango.

    Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir

    Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir

    Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson

    hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

    1 hr 37 min

About hún hlaðvarp

From the publisher's feed

Hún er hlaðvarpssería um konur sem hafa farið sínar eigin leiðir í íslensku atvinnulífi. Þær koma úr ólíkum áttum en eiga það sameiginlegt að hafa byggt upp sterkan feril og tekist á við krefjandi…