Starkaður Sigurðarson og Auður Lóa Guðnadóttir, safnverðir í Sauðaneshúsi á Langanesi, senda okkur pistil. Í dag fjalla þau um eitt elsta steinhús landsins og velta fyrir sér heilagleika hins gamla og upprunalega.
Við heimsækjum nýtt sýningarrými uppi á Höfðabakka, Studio Sol, og ræðum við stofnandann Daríu Sól Andrews um galleríið og veltum fyrir okkur hvort hægt sé að draga reykvískar listaspírur úr miðbænum.
Í Skálholti eru sumartónleikarnir í fullum gangi og við heyrum í Höllu Steinunni Stefánsdóttur, fiðluleikara, og meðlim tónlistarhópsins Nordic Affect. Hópurinn heldur tónleika um helgina þar sem sjónum verður beint að framlagi kvenna til tónlistar á barokktímanum.
Við rifjum líka upp sögu Verslumannahelgarinnar og Þjóðhátíðar í Eyjum með broti úr safni.