
Sign up to save your podcasts
Or


Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hvaðan kom Hafmeyjan og hvernig bar hana að ströndum Íslands? Og hvernig var rætt um verkið í aðdraganda sprengjunnar? Við sögu koma sendiherra og olíukóngur, sjálfstæðismenn í borginni, Kalda stríðið og óánægðir módernistar.
Dagskrárgerð: Halla Harðardóttir
______________________________
Hvernig rataði Hafmeyja Nínu Sæmundsson í Tjörnina í Reykjavík? Og hvað varð til þess að hún var sprengd í loft upp? Var glæpurinn fagurfræðilegur eða pólitískur? Var þetta hatursglæpur eða hrein skemmdarfýsn? Og hvernig tengjast módernistar, þjóðernissinnar, Hollywood og heitar ástir ráðgátunni? Í þessari sex þátta seríu kafar Halla Harðardóttir í best geymda leyndarmál íslenskrar listasögu, skoðar söguna í nýju ljósi og miðlar spennandi tilgátum.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Saga Nínu sem ólst upp í torfbæ, braust til mennta í Kaupmannahöfn og hélt svo til Parísar, Rómar, New York og Hollywood. Hvar staðsetjum við Nínu í listasögunni og afhverju þótti hún gamaldags þegar hún sneri aftur heim?
______________
Hvernig rataði Hafmeyja Nínu Sæmundsson í Tjörnina í Reykjavík? Og hvað varð til þess að hún var sprengd í loft upp? Var glæpurinn fagurfræðilegur eða pólitískur? Var þetta hatursglæpur eða hrein skemmdarfýsn? Og hvernig tengjast módernistar, þjóðernissinnar, Hollywood og heitar ástir ráðgátunni? Í þessari sex þátta seríu kafar Halla Harðardóttir í best geymda leyndarmál íslenskrar listasögu, skoðar söguna í nýju ljósi og miðlar spennandi tilgátum.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Heimavistarskólarnir voru barn síns tíma. Nauðsynlegt úrræði til þess að mennta börn til sveita en ekki ákjósanlegasta fyrirkomulagið til þess að sinna tilfinningalegum þörfum þeirra. Í þessum lokaþætti köfum við aðeins ofan í tilfinningarnar en bregðum okkur líka aftur í tímann og heimsækjum Reykjanesskóla í Ísafjarðardjúpi árið 1980 og Hallormsstaðaskóla aldamótaárið 2000.
Viðmælendur: Guðbrandur Árni Ísberg, Halldór Halldórsson, Rúnar Sigþórsson, Berglind Rós Magnúsdóttir, Eva Björk Eyþórsdóttir og ýmsir viðmælendur úr stundinni okkar 1980 og 2000.
Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Umsjónarmaður heimsækir sinn gamla skóla, Þelamerkurskóla í Hörgárdal, og spjallar við fólk sem dvaldi þar í heimavist á sjöunda og áttunda áratugnum. Sum þeirra ylja sér við ljúfar minningar en önnur líkja vistinni við helvíti á jörð.
Viðmælendur. Anna Rósa Friðriksdóttir, Anna Ragna Árnadóttir, Eydís Björk Davíðsdóttir og ónefnd systkini.
Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Það er flókið að tryggja öllum börnum í strjálbýlu landi sömu tækifæri til menntunar. Heimavistarskólar voru langþráð lausn og stolt hverrar sveitar þegar þeir loksins risu. Í þessum fyrsta þætti skoðum við hvernig skólahald til sveita þróaðist á 20. öldinni og heyrum bæði af heimþrá og hamingju á heimavist.
Viðmælendur: Rúnar Sigþórsson, Jónína Einarsdóttir, Þura Jónasdóttir, Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir og Líney Snjólaug Diðriksdóttir.
Lesari: Ólöf Elsa Ásgrímsdóttir.
Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Það er gamlársdagur og grimmur raunveruleiki blasir við íbúum í Keflavíkurkauptúni. Eldurinn er slökknaður en leitað er í rústunum að fórnarlömbum brunans í Skildi. Þau finnast fljótt en ekki er hægt að bera kennsl á alla. Á sjúkrahúsi liggja 13 þungt haldin.
Harmi lostnir kveðja íbúar Keflavíkurhrepps hið liðna ár og heilsa hinu komandi með sorg og kvíða.
Umsjón: Dagný Maggýjar
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Jólatréð stóð aðeins fyrir innan miðjan salinn í Skildi. Börnin gengu í kringum tréð og sungu á milli þess sem þau fóru til skiptis upp á svið til að þiggja þar veitingar. Salurinn var í hátíðarbúningi og litfilmur voru settar við ljós til að skapa stemningu. Klukkan var um hálf tíu, og gestir sungu Göngum við í kringum einiberjarunn, þegar skyndilega kviknaði í trénu.
Umsjón: Dagný Maggýjar
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
From the publisher's feed
Hvernig rataði Hafmeyja Nínu Sæmundsson í Tjörnina í Reykjavík? Og hvað varð til þess að hún var sprengd í loft upp? Var glæpurinn fagurfræðilegur eða pólitískur? Var þetta hatursglæpur eða hrein…
Umsjón og dagskrárgerð: Halla Harðardóttir fyrir Rás 1
Aðrar þáttaraðir í þessu safnvarpi:
Börnin á vistinni
Bruninn í Skildi
Sprengjan sem sprakk
Elsta land í heimi
Sölvadalur
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.