Það stefnir í að sterkustu hlauparar landsins mæti á startlínuna í Puffin Run 2025. Þorbergur Ingi kemur með greiningu á hlaupinu:
- Hlynur Andrésson er hraðasti hlauparinn, Arnar Pétursson á brautarmetið og Þorsteinn Roy hefur yfirnáttúrulega hæfileika í erfiðri braut. Hvernig halda menn á vopnum sínum og hvenær þurfa þeir að höggva?
- Andrea Kolbeins, Guðlaug Edda og Elín Edda keppast kvennamegin. Hversu hratt þarf Andrea að fara til að tryggja sér sigur – og Íslandsmet í maraþoni helgina eftir? Munu Eddurnar gera hennir erfitt fyrir?
- Verðlaunaféð í Puffin: Samanburður við Reykjavíkurmaraþon og vangaveltur um hvata fyrir elítuhlaupara.