
Sign up to save your podcasts
Or


Í þættinum segja systurnar Auja og Birta frá sveppatýnsluferð og sultugerð, spá í bolla og ráða í draum.
Í þættinum fá systurnar Auja og Birta góðan gest í þáttinn, skáldið Ásdísi Óladóttur, sem ræðir um skáldskapinn, andleg veikindi og líf sitt með geðklofa.
Einnig ræða systurnar hvað er á döfinni hjá Skriðu í haust, draga spil, ræða ljóðabókina Rifsberjadalinn eftir Ásdísi og hvernig bókmenntirnar geta víkkað sýn okkar og gefið okkur innsýn í það sem við þekkjum ekki.
Í þættinum fá systurnar Auja og Birta loksins aftur um að ræða sitt uppáhalds umræðuefni, draumana. Auja segir frá snákadraumi sem hana dreymdi nóttina áður og Birta les upp úr draumadagbókinni sinni, þar sem m.a. koma líka fram snákar, eyðihús og thermos kaffibrúsi. Þær ræða svo og ráða í einstaklega fyndinn og furðulegan draum sem þær fengu sendan.
Fyrsti þáttur eftir hlé. Birta og Auja rifja upp hvað þær hafa verið að sýsla við síðan síðast. Ræða bækur, draga spil og spjalla um það sem er framundan.
Í þættinum taka systurnar Auja og Birta upp þráðinn þar sem frá var horfið síðan síðast. Þær segja frá breyttum venjum eftir að þær hættu snjallsímanotkun, ræða bækur sem þær hafa verið að lesa, draga spil, spjalla um innsæið og það að treysta því, áskoranir sem andlegan þroska, ný verkefni í listinni og fleira.
Annar þáttur sendur út frá fjallaþorpinu Argyroupoli á Krít. Auja og Birta ræða við kaffihúsaeigandann Dimitris, sem er fæddur í þorpinu og rekur þar æðislegt kaffihús. Einnig ræða þær um krefjandi fjallgöngur, bollaspá, grískt kaffi, hið illa auga í þjóðtrú grikkja og fleira.
Þátturinn er sendur út frá litla fjallaþorpinu Argyroupoli á Krít. Í þættinum ræða Auja og Birta um þorpslífið, bækur sem þær hafa verið að lesa, segja frá húslestrinum og Auja les upp splunkunýja smásögu um fjárhirði.
Í þættinum ræða Auja og Birta um vísbendingar og það að fylgja vísbendingum. Þær ræða líka um bækur sem þær hafa verið að lesa nýlega og segja frá verkefnum í Skriðu og Birta les upp tvö ljóð.
Gestur þáttarins og jafnframt fyrsti gestur hlaðvarpsins er Móheiður Hlíf Geirlaugsdótttir, skáld, þýðandi og bóksali í Kanínuholunni. Við ræðum við hana um bókaveröldina Kanínuholuna, skáldskapinn, þýðingar, andleg mál og fleira.
From the publisher's feed