Í útilegu...nú förum við! Það eru svo mörg flott tjaldstæði á Íslandi að það er varla hægt að velja. Svo er líka hægt að ferðast með alls konar tjöld, fellihýsi, hjólhýsi og tjaldvagna. Möguleikarnir eru endalausir og við hendum okkur af stað. Útilegusérfræðingar þáttarins gefa okkur góð ráð og segja skemmtilegar sögur úr útilegum en það eru Guðrún Katrín, Katrín Karlinna og systurnar Athena Rós og Hera Kristý. Þjóðsögur þáttarins fjalla um strák sem var togaður út úr tjaldinu sínu og göldróttan biskup sem kann að vernda sitt tjald!