Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Spennum beltin og ferðumst hringinn með KrakkaRÚV! Stórskemmtilegir fjölskylduþættir fyrir ferðalanga á ferð um Ísland. Þjóðsögur og ævintýri, bílaleikir, fróðleiksmolar og sögur frá krökkum á öllum a... more
FAQs about Hvar erum við núna?:How many episodes does Hvar erum við núna? have?The podcast currently has 22 episodes available.
June 24, 2021Upp í sveitAh, blessuð sértu sveitin mín! Út um allt land eru sveitir, bændur og húsdýr af öllum stærðum og gerðum. Sumir bændur sinna dýrum, aðrir rækta grænmeti og enn aðrir tína æðadún. Við heyrum í krökkum sem hafa alist upp við störf á mismunandi sveitabæjum en það eru Þórhalla Guðný, Baldur Karl og Hrefna sem tínir æðadún með mömmu sinni Karen og afa Hilmari. Til að stytta okkur stundir við sveitastörfin hlustum við klassíska ævintýrið um hana Búkollu. Svo er það spurningakeppnin, ekki gleyma henni!...more20minPlay
June 23, 2021Nesti náttúrunnarSumarið er tíminn, segja allir jurtasérfræðingar landsins! Þá er matarkistan stútfull og hægt að safna allskonar góðum fjallagrösum, berjum, sveppum til að elda með, búa til te og jafnvel lækningaseyði og smyrsl. En hvernig veit maður hvað má borða og hvað ekki? Við hittum jurtasérfræðingana og vinkonurnar Matthildi og Heklu Sif en þær hafa lært heilmargt af mömmu Heklu, henni Sillu. Jói gluggar í gamla jurtalækningabók og Ingibjörg dregur fram fróðleik um göldróttar plöntur! Þjóðsagan segir af tveimur mönnum sem lentu í ævintýrum þegar þeir voru að safna fjallagrösum. Í spurningakeppninni í lokin kemur svo í ljós hver veit mest um nesti náttúrunnar....ja, eða hlustaði best á þáttinn!...more20minPlay
June 22, 2021Í hellaskoðunHalló...halló......halló? Vá hvað það er mikið bergmál í þessum helli! Við horfumst í augu við innilokunarkennd og myrkfælni, setjum á okkur hjálm og höfuðljós og dýfum okkur ofan í undraveröld hellanna. Hellasérfræðingar þáttarins eru Baldur Karl, Björn Óli og Arnór Darri en þeir hafa skoðað marga skemmtilega hella eins og Maríuhella, Víðgelmi og Surtshelli. Það eru ótalmargar þjóðsögur til sem gerast í hellum en þær sem við heyrum í þættinum eru sögurnar af Krákuhelli og Surtshelli. Hlustið vel því það gæti hjálpað ykkur að sigra spurningakeppnina í lokin!...more20minPlay
June 21, 2021Í veiðiferðEr fiskur í þessari á? En vatninu? Ert þú aflakló? Þá er þessi þáttur eitthvað fyrir þig! Við förum í veiðiferð, stangveiði, fluguveiði, dorgum og gerum allt til þess að fá maríufiskinn! Systkinin Björg Yrsa, Tryggvi Týr og Bjarni Þór hafa farið í veiðiferðir síðan þau fæddust og eru öllum hnútum kunn. Þau kenna okkur að kasta línu og hvernig á að fá túnfisk. Veiðiþjóðsögurnar fjalla annars vegar um veiðiþjóf sem stal af göldróttum bónda og hins vegar um tvo silunga, annan loðinn en hinn slímugan og sleipan. Veist þú afhverju ýsa er með svarta rönd? Þá gætir þú nælt þér í stig í spurningakeppninni í lokin!...more20minPlay
June 16, 2021Aftur í útileguHvað er skemmtilegra en að fara í útilegu á sumrin? EKKERT! Förum aftur í útilegu og leitum uppi skemmtilegustu staðina til að tjalda á. Útilegusérfræðingar þáttarins eru Áslaug Nanna og systkinin Unnur Mist og Tristan Þór. Þjóðsögurnar fjalla um frægan dal þar sem stórar tjaldbúðir eru reistar í ágúst á hverju ári og svo útilegumenn, en það eru ekki bara menn sem fara í útilegur...Hver veit mest um útilegur? Það kemur í ljós í spurningakeppninni í lokin!...more20minPlay
June 15, 2021Í útileguÍ útilegu...nú förum við! Það eru svo mörg flott tjaldstæði á Íslandi að það er varla hægt að velja. Svo er líka hægt að ferðast með alls konar tjöld, fellihýsi, hjólhýsi og tjaldvagna. Möguleikarnir eru endalausir og við hendum okkur af stað. Útilegusérfræðingar þáttarins gefa okkur góð ráð og segja skemmtilegar sögur úr útilegum en það eru Guðrún Katrín, Katrín Karlinna og systurnar Athena Rós og Hera Kristý. Þjóðsögur þáttarins fjalla um strák sem var togaður út úr tjaldinu sínu og göldróttan biskup sem kann að vernda sitt tjald!...more20minPlay
June 14, 2021Í gönguferðNú leggjum við upp í langferð, eða kannski bara stutt hopp upp á næsta fjall! Göngum, göngum, göngum upp í gilið og niður, niður alveg niðurá tún. Hvað þarf maður að taka með sér í gönguferðir? Hvernig er best að undirbúa sig og hverjar eru fallegustu gönguleiðir á Íslandi? Við fáum svör við þessu öllu frá göngusérfræðingum þáttarins en það eru þau Guðrún Katrín, Óliver Rafn og Baldur Karl. Þjóðsögur þáttarins fjalla um gönguferðir ruglbræðranna frá Bakka og prest sem gekk í svefni. Ef þið eruð að fara í gönguferð þá er þessi þáttur skylduhlustun í undirbúninginn! Ekki gleyma spurningakeppninni í lokin......more20minPlay
June 10, 2021Náttúruperlur VesturlandsÍ þessum þætti köfum við dýpra í náttúrufjársjóðskistu Vesturlands og Vestfjarða. Þar er hægt að klifra í klettum, leika sér á löngum ströndum, fara í náttúrulaugar, skoða fossa og fylgjast með dýralífi. Heimamennirnir og sérfræðingarnir Saga frá Ísafirði, Marinó frá Borgarnesi og Sigurbjörg Heiða frá Akranesi segja okkur frá þessum fallegu náttúruperlum og hvaða staðir eru ómissandi fyrir krakka og fjölskyldur á ferð um Vesturland! Þjóðsögur þáttarins fjalla um stórhættulegan foss í Borgarfirði og dularfullt ljós á Hornströndum. Hlustið vel á þáttinn ef þið viljið vinna spurningakeppnina í lokin!...more20minPlay
June 09, 2021Náttúruperlur NorðurlandsÍ þessum þætti köfum við dýpra í náttúrufjársjóðskistu Norðurlands. Við ferðumst um fjöll, firnindi, fossa, gil og tröllaslóðir og fáum ábendingar um fallega staði til að skoða frá þeim Elísabetu frá Húsavík, Rakel Sonju frá Varmahlíð og Maríon Eddu, Ilmi, Kristínu Leu og Margréti Ósk frá Mývatnssveit. Þjóðsaga þáttarins fjallar um dularfullan klett sem er eins og bátur í laginu. Hvers vegna ætli það sé? Spurningakeppnin er á sínum stað í lok þáttar og það er eins gott að hlusta vel á þáttinn því þannig gætuð þið nælt ykkur í aukastig og jafnvel sigrað!...more20minPlay
June 08, 2021Náttúruperlur AusturlandsÍ þessum þætti köfum við dýpra í náttúrufjársjóðskistu Austurlands. Hvar finnast helstu gimsteinar og náttúruperlur landshlutans og hvernig kemst maður þangað? Heimamennirnir Hallgrímur Vopni frá Egilsstöðum og Iðunn Elísa frá Reyðarfirði segja frá sínum uppáhaldsstöðum. Þjóðsögur þáttarins fjalla um álfadrottingu Íslands sem á að búa á Borgarfirði eystra og völvuna sem vakir yfir Reyðarfirði og Eskifirði. Spennið beltin því að lok þáttar er æsispennandi spurningakeppni þar sem barist verður um titilinn "náttúruperlusérfræðingur Austurlands!"...more20minPlay
FAQs about Hvar erum við núna?:How many episodes does Hvar erum við núna? have?The podcast currently has 22 episodes available.