Ah, blessuð sértu sveitin mín! Út um allt land eru sveitir, bændur og húsdýr af öllum stærðum og gerðum. Sumir bændur sinna dýrum, aðrir rækta grænmeti og enn aðrir tína æðadún. Við heyrum í krökkum sem hafa alist upp við störf á mismunandi sveitabæjum en það eru Þórhalla Guðný, Baldur Karl og Hrefna sem tínir æðadún með mömmu sinni Karen og afa Hilmari. Til að stytta okkur stundir við sveitastörfin hlustum við klassíska ævintýrið um hana Búkollu. Svo er það spurningakeppnin, ekki gleyma henni!