Sumarið er tíminn, segja allir jurtasérfræðingar landsins! Þá er matarkistan stútfull og hægt að safna allskonar góðum fjallagrösum, berjum, sveppum til að elda með, búa til te og jafnvel lækningaseyði og smyrsl. En hvernig veit maður hvað má borða og hvað ekki? Við hittum jurtasérfræðingana og vinkonurnar Matthildi og Heklu Sif en þær hafa lært heilmargt af mömmu Heklu, henni Sillu. Jói gluggar í gamla jurtalækningabók og Ingibjörg dregur fram fróðleik um göldróttar plöntur! Þjóðsagan segir af tveimur mönnum sem lentu í ævintýrum þegar þeir voru að safna fjallagrösum. Í spurningakeppninni í lokin kemur svo í ljós hver veit mest um nesti náttúrunnar....ja, eða hlustaði best á þáttinn!